Lilypie Third Birthday tickers

Tuesday, December 27, 2011

Fyrsta jólaballið :)

Í dag fórum við Stefán Sölvi með Steinku systur, Gumma mági, Úlfhildi barnabarninu þeirra og Örnu Rún barnabarni Helenar systur á jólaball frímúrara niðri í Borgartúni.  Stefán var í sínu fínasta pússi og fékk mörg bros þegar fólk sá þennan flotta herramann með bindi :)  Arna Rún skoppaði glöð um svæðið en Úlfhildur labbaði um með aðstoð ömmu og afa.  Við tókum nokkra hringi í kringum jólatréð og Stefán starði í kringum sig hugfanginn.  Litlu lappirnar hömruðu í sífellu á lærunum á mér svo greinilegt var að honum fannst þetta stuð :)  Hann fékk lítinn partíhatt við dyrnar eins og hin börnin, fór honum reglulega vel :D  Hann fékk að prófa smá Svala og fannst það ansi gott, deildi líka smá brauði með mömmu :)  Annars fékk hann bara mömmubrjóst meðan stærri krakkarnir fengu nammi :)  Við fórum heim eftir tvo tíma, þá var unginn orðinn svo þreyttur eftir fjörið að hann steinsofnaði í bílnum á leiðinni heim :) Hér eru nokkrar myndir frá ballinu:
 Stefán reffilegur með hattinn sinn í fanginu á Gumma
 Við Stefán dönsum í kringum jólatréð
 Úlfhildur að dansa við tónlistina
 Arna að ganga í kringum jólatréð
 Úlfhildur spjallar við frænda sinn sem reyndir að vinda sér til í stólnum til að sjá hana
Arna og Gummi á spjallinu :)

No comments:

Post a Comment