Lilypie Third Birthday tickers

Friday, June 21, 2013

Sundtúr í Elliðavatni !

Við Stefán skelltum okkur í göngutúr með Freyju og Steinku við Elliðavatn.  Við gengum eftir göngustíg meðfram Helluvatni og nutum þess að horfa á óðinshana og himbrima synda á vatninu.  Við stoppuðum við litla vík og Stefán fékk að kasta steinum í vatnið. Við löbbuðum svo aðeins lengra en þar sem erfitt var að halda Stefáni á stígnum ákváðum við að snúa við.  Til þess að fá hann til að koma með okkur til baka lofuðum við því að hann fengi aftur að kasta steinum í víkinni.  Hann gekk því með mér sæll og ánægður tilbaka að víkinni og hóf þegar að kasta steinum.  Aðeins var liðin lítil stund þegar hann skyndilega tók viðbragð og hljóp út í vatnið !  Hann hljóp sífellt lengra, loks var vatnið komið upp að mitti.  Þá datt ræfillinn og tók nokkur sundtök með höfuðið reigt upp úr vatninu.  Hann var að sökkva þegar ég náði að grípa hann en fékk vatnið yfir hausinn.  Hann rak strax upp vein og fór að hágráta.  Við óðum í land og svo tók ég rennandi blauta drenginn minn í fangið og bar að bílnum.  Við klæddum hann úr blautu fötunum og hann titraði og skalf, enn hágrátandi.  Svo skellti ég honum inn í bíl og setti nýja bleyju og klæddi hann í flíspeysuna sína.  Svo vöfðum við hann inn í peysur af Steinku og gáfum honum safa og Cheerios þar til hann jafnaði sig.  Þessi lífsreynsla hafði greinilega áhrif á minn mann, hann sat aftur í bílnum og sagði bleyta bleyta nokkrum sinnum.  Við borðuðum með Steinku og hann fór svo í heitt bað er heim kom.  Þegar hann var kominn upp í rúm að lúra sagði hann : blautur, var kalt.  Vonandi lærir hann á þessum mistökum og heldur sig á bakkanum hér eftir !

Thursday, June 20, 2013

Skemmtiferð að Kleifarvatni :)

Við Stefán fórum með Steinku og Freyju upp að Kleifarvatni.  Við keyrðum yfir Stefánshöfða og fórum á ströndina þar og hleyptum hundinum og spræka drengnum út.  Stefán tók auðvitað strikið beint niður að vatninu og Freyja með.  Mér tókst að stöðva hann í að fara út í vatnið en .leyfði honum aðeins að stappa í vatnsyfirborðinu.  Síðan fór hann að kasta möl í vatnið svo ég ákvað að sýna honum hvernig ætti að kasta steinum í vatnið.  Það sló þvílíkt í gegn.  Hann fór óteljandi ferðir og sótti steina til að henda í vatnið.  Sumir þeirra voru risastórir og níðþungir en hann bisaðist með þá að vatninu og henti þeim út í !  Litli kraftakarl :)  Síðan þegar kom að því að halda heim á leið vildi ungi maðurinn alls ekki hætta.  Það endaði með því að ég varð að bera hann meirihlutan af leiðinni til baka að bílnum, öskrandi og gargandi.  Svo kom Steinka og spurði hann hvort hann vildi ekki koma með í bílinn og kaupa ís í Hafnarfirði.  Þetta reyndist vera töfraorðið og minn maður brunaði upp að bílnum og settist sæll inn.  Við fórum svo í Hafnarfjörðinn og keyptum ís.  Unginn litli var afar ánægður með þessi málalok :)

Saturday, June 15, 2013

Stefán Sölvi er orðinn tveggja ára !

Það er orðið alltof langt síðan ég skrifaði síðast.  Stefán Sölvi er alltaf að vaxa og þroskast og talið tekur framförum á degi hverjum.  Hann endurtekur allt sem maður segir og er farinn að nota fleiri setningar.  Svo syngur hann fleiri lög en áður, t.d. Allur matur á að fara, upp í munn og ofan í maga :)  Hann er líka hættur að kalla Svanhildi Svövu og Helen Hala eða Halla :)  Hann er líka búinn að taka ástfóstri við orðið NEI og notar það óspart sem lið í sjálfstæðisbaráttu sinni.  Elsku dugnaðarforkurinn varð svo tveggja ára 17. maí.  Við Hilda sungum fyrir hann afmælissönginn um morguninn þegar hann vaknaði og hann varð pínu vandræðalegur :)    Í leikskólanum fékk hann kórónu og svo var sungið fyrir unga manninn :)  Þegar við komum heim opnaði hann svo pakkann frá mömmu sem innihélt múmínálfaspil, múmínálfa púsl, múmínálfabók og herramannabók. Þessu var öllu vel tekið.  Helen frænka kom og knúsaði prinsinn og færði honum risastóra blöðru í tilefni dagsins :)  Við fengum okkur svo gott í matinn og afmælisbarnið sofnaði sælt og ánægt.  En til að fagna drengnum dugði ekkert minna en 3 veislur. Sú fyrsta var haldin laugardaginn 18. maí.  Þar komu  Júlíana og fjölskylda, Harpa með Silju sína, Ágústa, Gunna og Sigga Sóley, Gunnella og Elena :)  Stefán fékk margar góðar gjafir s.s sandkassadót, bol og bók.  Mánudaginn 20. maí var svo fjölskylduafmælið haldið heima hjá Möggu frænku. Þar voru fjöldi ættingja og svo kíkti Raggi pabbi Hildu við með hina bræður hennar og bróðir Arons hans Steinars kom líka :)  Stefán fékk fullt af gjöfum s.s. bækur, Angry birds púða, Angry birds skó, Angry birds nærbuxur, Lego, buxur, bol, bíla og þyrlu :)  Þarna var fullt af stórum strákum sem Stefán var afar hrifinn af en honum fannst þeir aðeins of frekir á Ipadinn hennar Möggu :)  Síðasta veislan var svo haldin 25. maí.  Þá mættu Guðný og Hrafndís, Kristín Anna og Doddi, Sesselja og fjölskylda, Kristín Lóa og Davíð, Sif og Ægir, Magnea og Eyrún og Ólöf.  Ekki var nú minna fjör í þetta skiptið en afmælisbarnið var reyndar sofandi þegar gestirnir mættu svo hann var frekar úrillur þegar hann var vakinn. Þegar afmælissöngurinn var sunginn brast hann svo í grát !  Síðan fór hann að njóta þess að ólmast í kringum krakkana.  Hann varð hinsvegar niðurbrotinn þegar stóru strákarnir Doddi og Davíð Kári fengu að fara út í garð.  Hann brotnaði alveg niður, honum langaði svo með !  Hann og Bryndís Eva hennar Sesselju léku sér vel saman og skemmtu sér sérstaklega vel í Ikea göngunum sem voru tekin fram til að auka á fjörið :)  Hann fékk fullt af fínum gjöfum, s.s. peysur, prjónaða vettlinga, sundföt, Lego, bækur og sápukúludót.  Loks var svo afmælishátíðarhöldunum lokið.  Hann fékk reyndar einn pakka á milli veisla.  Það barst gjöf frá Sonju Sofie og foreldrum hennar í Danmörku, afar fínt Barbapabbapúsl :)  Mikil gleði með það.  Ég sló svo máli á tveggja ára prinsinn, skv. því er hann tæplega 94 cm og 17 kg !  Litla tröllið mitt :)

Sunday, April 28, 2013

Margt hefur gerst !

Jahérna, ansi langt síðan skrifað var hér síðast !  Fór úr mér allur vindur þegar Google vildi rukka mig fyrir að setja inn fleiri myndir af prinsinum.  Er ekki alveg búin að ákveða hver framtíð síðunnar verður eða hvort ég flyt mig annað. Annars hefur margt á daga drengsins drifið síðan síðast.  Hann byrjaði í leikskólanum Nóaborg þann 1.febrúar og hefur það gengið vel.  Talið hefur tekið miklum framförum og er hann sífellt að herma eftir okkur og bæta nýjum orðum við :)  Mest er talað í stökum orðum og tveggja orða setningum en stöku 3 orða setning læðist með.  Sú fyrsta sem hægt var með vissu að bera kennsl á kom á páskadag: allt búi súkkúlía, sagt í vonbrigðum yfir því að páskaeggið var búið :)  Hann er oft að syngja og fyrsta lagið sem ég gat algerlega borið kennsl á var Litalagið (gulur, rauður etc).  Hann söng guluuur, og svo appelsína talandi :D  Restin af textanum var frekar illskiljanlegur en lagið þekktist :)  Svo er hann oft að syngja Twinkle twinkle little star en hann elskar myndband með þvi lagi á youtube :)  Hans útgáfa hljóðar svona: Pingul pingul skal, háv æ vonder wat og svo kemur eitthvað óskiljanlegt :D  Nú er hann líka farinn að velja aðeins hvaða lög ég á að syngja á kvöldin, stoppar mig ef honum líkar ekki lagið :D  Uppáhaldslögin eru Kónguló, vísaðu mér á berjamó, Upp á grænum,grænum himinháum hól og Göngum upp í gilið.  Hann er búinn að vera hraustur síðan í janúar fyrir utan hor í nös og tvo daga sem hann var heima vegna hita sem hann fékk um kvöld en hvarf síðan að morgni.  Við höfum haft nóg að gera í að ólmast í Litla íþróttaskólanum, fórum á vornámskeið eftir að fyrsta námskeiðinu okkar lauk.  Herranum finnst þetta ekkert leiðinlegt og við kíkjum örugglega í haust líka :) Nýjasta nýtt er að hann fór í hálskirtlatöku núna 26. apríl og voru nefkirtlarnir teknir aftur í leiðinni.  Aðgerðin gekk vel en drengurinn er frekar aumur og lítill í sér.  Hann á að vera heima í viku og ætlum við mæðgin bara að hafa það huggó :D

Sunday, January 27, 2013

Fyrsta skipti í leikhús - Skoppa og Skrítla í Borgarleikhúsinu

Í dag fór ungi maðurinn í leikhús í fyrsta sinn.  Við fórum að sjá Skoppu og Skrítlu í Borgarleikhúsinu. Sesselja vinkona fór með okkur með fjölskylduna sína; Gumma manninn sinn og Bryndísi Evu og Steinar Mána.  Stefán var spenntur fyrir öllu í andyri Borgarleikhússins og æddi um allt meðan við biðum eftir því að sýningin byrjaði.  Skoppa og Skrítla birtust fyrir utan salinn tíu mínútum áður en opnað var og vöktu mikla lukku hjá börnunum.  Stefáni fannst þær ekki alveg nógu traustvekjandi, labbaði af stað í áttina að Skrítlu en sneri svo snögglega aftur við í mömmufang :)  Bryndís Eva var hinsvegar hvergi bangin og spjallaði lengi við Skrítlu :)  Síðan var hleypt inn í salinn og fengum við bestu sæti alveg við sviðið.  Stefán átti að sitja á púða á gólfinu en spratt á fætur og fór upp á sviðið.  Var það aðeins fyrsta af fjöldamörgum tilraunum hans til að fara upp á sviðið sem flestar áttu sér stað á meðan á sýningu stóð !  Þegar sýningin byrjaði sat hann í smástund agndofa og horfði á.  Síðan fór hann að standa reglulega upp og reyna að komast upp á sviðið.  Seinnihluta leikritsins stóð hann mest upp við sviðið og starði hugfanginn á þær.  Í einu atriðinu kom Skoppa með ljónahandbrúðu og lét hana urra, þá hljóp litla hérahjartað mitt til mömmu svona rétt til öryggis :)  Þegar þær stöllur sungu eitt lagið dansaði hann og klappaði með, alveg hæstánægður :D  Þegar sýningunni lauk stökk hann upp á sviðið og fór að skoða sviðsmyndina, glaður að fá loksins tækifæri til þess að skoða það sem honum langaði til :)  Var ekki alveg sáttur við að vera tekinn niður.  Hann fékk svo að prófa að sitja í fanginu á bæði Skoppu og Skrítlu og mamma tók mynd :)  Hann var til í að setjast hjá þeim en var svo feiminn að hann fór alveg í hnút og er grafalvarlegur á myndunum.  Þegar systkinin Bryndís og Steinar voru ljósmynduð með Skoppu var hún svo indæl að gefa Steinari einn geisladisk með leikritinu :)  Þetta var hin besta skemmtun og vorum við Sesselja sammála um að þetta hefði verið sérlega vel heppnaður dagur fyrir krílin okkar :)

Saturday, January 26, 2013

Fyrsta skýra tveggja orða setningin :)

Stefán segir sífellt fleiri orð, en mest af því sem kemur út úr honum er þó á tungumáli sem ég ber ekki kennsl á :)  Í dag sagði hann þó fyrstu skýru tveggja orða setninguna sem var: meira nammi !  Tek fram að hann var að biðja um skyr samt, nammi er líka matur ekki bara eitthvað góðgæti.  Með nýjustu orðunum er billa fyrir bíl og haní fyrir hamstur (reyndar notað yfir kanínu líka :))

Wednesday, January 23, 2013

Læknisheimsóknir

Við Stefán eyddum deginum í læknisheimsóknir.  Fyrst mættum við hjá Ólafi Guðmundssyni HNE lækni sem skoðaði eyrun sem búið var að leka úr stanslaust dagana þar á undan.  Hann ákvað að best væri að fjarlægja rörin og bókaði herrann í aðgerð 12. febrúar.  Hann náði að sjarmera alla á biðstofunni áður en við komumst að, þar var fullt af eldra fólki og hann heilsaði, gaf þeim blöð og kubba og skemmti þeim með því að stinga mig af :)  Eftir hádegið fórum við svo í ofnæmispróf vegna gruns um að Stefán væri með pensilínofnæmi.  Hann hefur 2x fengið útbrot þegar hann var á pensilíni svo læknarnir á heilsugæslunni vildu að hann færi í þetta próf áður en hann fengi pensilín aftur.  Við mættum inn á Barnaspítala og þar tóku Tone hjúkrunarfræðingur og Gunnar læknir á móti okkur.  Stefáni var gefin pensilínsprauta og svo fórum við upp á leikstofu til að eyða tímanum en við áttum að mæta aftur eftir hálftíma.  Það var æðislega gaman á leikstofunni.  Þar var bíll sem mamma gat ýtt honum í eftir öllum ganginum, fullt af gervimat og eldhúsdóti til að sýsla við, fiskabúr með gullfiskum og froskum og allskyns annað dót til að leika með.  Við fórum svo niður eftir hálftíma og hann fékk annan skammt af pensilíni eftir skoðun.  Nú áttum við að bíða í klukkutíma og var tíminn fljótur að líða á leikstofunni.  Það sem hann skemmti sér !  Var eiginlega svekkjandi að þurfa að fara :) En til allrar lukku var niðurstaðan sú að hann er ekki með pensilínofnæmi.  Næsta sýking verður því örugglega drepin niður með pensilíni !