Stefán Sölvi er nú orðinn ansi sjóaður í ferðalögum. Við fórum sl. miðvikudag, þann 13. júlí, upp í Húsafell að heimsækja Cindy vinkonu og fjölskyldu sem var þar í bústað. Kristín Anna vinkona kom með. Stefán svaf eins og engill alla leiðina upp eftir en þegar í bústaðinn kom vaknaði hann upp og var pínu órólegur eftir að hafa fengið að drekka. Til allrar lukku voru margir á staðnum tilbúnir til að ganga um gólf með hann :) Ég setti hann svo í fína nýja vafningsteppið hans og varð hann aðeins rólegri við það. Loks sofnaði hann og svaf innpakkaður eins og lítil púpa :) Þegar kominn var tími til að halda heim á leið fékk herrann hressingu og var svo settur í bílinn. Hann var hinsvegar ekki alveg sáttur við það að sitja í bílstólnum og skömmu eftir brottför hófust hávær mótmæli ! Hann róaðist á tímabili eftir að við keyrðum yfir mishæðóttan veg en svo byrjaði gráturinn aftur. Við urðum loks að stoppa í vegkantinum skammt frá Akranessafleggjaranum og Stefán kom fram í til mömmu og fékk sopa. Ferðin gekk svo vel þar til komið var í bæinn og við stoppuðum til að taka bensín. Þegar búið var að fylla á tankinn var bílinn orðinn rafmagnslaus og komst ekki af stað ! Stefán var ekki sáttur við það og lét það í ljós með háværum gráti. Gunni sonur Kristínar Önnu kom svo og bjargaði okkur en það var þreyttur lítill kvartandi karl sem kom hér heim rétt fyrir kl. 1 um nótt og var dauðfeginn að fá að kúra í mömmu rúmi :)
Sæta litla púpan sefur sætt :)
Fær sér drykk undir stýri :)
Saturday, July 16, 2011
Monday, July 11, 2011
Viðburðarrík helgi :)
Síðastliðna helgi var Stefán Sölvi á fullu við að gera eitthvað í fyrsta sinn, eins og venjulega :) Á laugardaginn fórum við í gönguferð niður í bæ með Svanhildi, Guðlaugu og litlu strákunum og skelltum okkur á Sólon kaffihúsið. Stefán hafði ekki áhuga á þeim veitingum sem þar voru í boði en fékk sér bara mjólk úr mömmubrjósti í staðinn :) Svo kom næsta nýja upplifun - tókum strætó heim svo nú hefur sá stutti prufað það :) Við fórum svo í heimsókn til Steinku systur og slöppuðum af í garðinum hjá henni. Á sunnudaginn fórum við svo í Perluna með Kristínu Önnu en þangað hafði Stefán ekki komið áður :D. Við fengum okkur snarl og löbbuðum hring á útsýnispallinum. Stefán svaf vært allan tímann. Svo var haldið í Fjölskyldu og húsdýragarðinn með Svanhildi og strákunum. Þar með hefur prinsinn prófað að koma þangað í fyrsta sinn :) Stefán vaknaði undir lok dvalarinnar og fékk að drekka við sjoppuna í Fjölskyldugarðinum. Það var farið að kólna svo við skelltum okkur heim. Alltaf nóg að gera hjá okkur :)
Stefán fær sér hressingu í Fjölskyldugarðinum
Bara huggulegt
Á brúnni milli garðanna
Sýndi selunum engan áhuga - þeir svöruðu í sömu mynt :)
Stefán fær sér hressingu í Fjölskyldugarðinum
Bara huggulegt
Á brúnni milli garðanna
Sýndi selunum engan áhuga - þeir svöruðu í sömu mynt :)
Wednesday, July 6, 2011
Göngutúr um Grasagarðinn
Í dag skruppum við Stefán Sölvi í göngutúr um Grasagarðinn með Júlíönu vinkonu. Við svindluðum svolítið, keyrðum á staðinn með vagninn og löbbuðum frá bílastæðinu :) Við tókum góðan hring um garðinn, löbbuðum líka út að gömlu þvottalaugunum og stoppuðum svo á Kaffi Flóru og fengum okkur hressingu. Þegar við lögðum af stað frá Kaffi Flóru vaknaði Stefán og vildi líka fá veitingar :) Ég settist því með hann á bekk og drengsi fékk sér að borða úti í fyrsta sinn :) Við fórum svo heim og hvíldum okkur aðeins, svo fórum við í heimsókn til Júlíönu í Mosfellsbæinn um kvöldið. Stefán svaf að mestu en náði aðeins að láta ljós sitt skína, meðal annars með því að kúka í gegnum fötin sín og þurfti hann því að vera á bleiunni vafinn inn í teppi hluta tímans ! Hér eru myndir af okkur í Grasagarðinum :)
Gott að fá hressingu úti :)
Alltaf falleg í Grasagarðinum :)
Gott að fá hressingu úti :)
Alltaf falleg í Grasagarðinum :)
Tuesday, July 5, 2011
Heimsókn til Kerans og fjölskyldu :)
Við skruppum í heimsókn til Kerans og fjölskyldu hans í dag. Ég vildi sýna Keran gæjann sem leyndist í bumbunni minni :) Keran var frekar hissa að sjá mig með lítið kríli og þegar Stefán fór að öskra seinna fannst honum nóg komið, alveg nóg að hafa litla bróður til að skapa læti á heimilinu :) Við Sigrún prófuðum að skipta á sonum, ég hélt á Alexander sem er níu dögum eldri en Stefán og hún fékk að prófa hlunkinn minn :) Alexander var léttur sem fjöður fannst mér, enda bara venjulegur drengur ekki hlunkabarn :) Stefán fékk að prófa ömmustól með titringi, tónlist og ljósum en hann dugði ekki til að halda honum rólegum, hann vildi bara fá að drekka :) Hér eru myndir frá heimsókninni:
Stefán Sölvi heilsar upp á Keran :)
Alexander og Stefán Sölvi kúra saman
Stefán er ekki eins þægur og Alexander, heimtaði athygli og þjónustu :)
Sætu bræðurnir :)
Stefán Sölvi heilsar upp á Keran :)
Alexander og Stefán Sölvi kúra saman
Stefán er ekki eins þægur og Alexander, heimtaði athygli og þjónustu :)
Sætu bræðurnir :)
Monday, July 4, 2011
Grill- og gróðursetningarferð 29. júní
Ég steingleymdi að segja frá ferð okkar Stefáns Sölva með starfsmönnum Umhverfis- og samgöngusviðs upp í Miðmundardal til að gróðursetja trjáplöntur. Veðrið var hreint yndislegt, sólin skein og allir nutu þess að vera úti. Stefán svaf reyndar af sér alla gróðursetningu, var bara í bílstólnum sínum og naut útiloftsins. Þegar við vorum búin að gróðursetja voru grillaðar pylsur. Rétt áður en haldið var heim á leið var Stefán tekinn aðeins upp úr stólnum en hann sofnaði strax aftur þegar lagt var af stað í bæinn. Búið er að ákveða að fara þarna árlega að planta trjám, á næsta ári verður Stefán örugglega mun fjörugari :) Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá þessari ferð:
Við Stefán í Miðmundardal
Aðeins tekinn upp til að sýna hann
Ef grannt er skoðað sést stóllinn hans Stefáns upp við grávíðisrunna :) Þarna svaf hann sæll !
Gott að sofa úti í náttúrunni :)
Við Stefán í Miðmundardal
Aðeins tekinn upp til að sýna hann
Ef grannt er skoðað sést stóllinn hans Stefáns upp við grávíðisrunna :) Þarna svaf hann sæll !
Gott að sofa úti í náttúrunni :)
Nýjustu krúttamyndir
Einn í stuði klukkan fjögur um nótt!
Á uppáhaldsstaðnum
Krílríkur í allri sinni dýrð :)
Yndislegasta bros í heimi :)
Best að smakka á þessum fingri, aldrei að vita nema hann bragðist vel :)
Hilda er dugleg að labba um með lillann til að róa hann
Þarna er maður alveg eldrauður :)
Æfingar hjá mömmu á brjóstagjafarpúðanum
Kúrt hjá stóru systur
Alltaf jafn gott að sofa í fanginu á henni
Knúsar litla blettatígurinn sinn :)
Á uppáhaldsstaðnum
Krílríkur í allri sinni dýrð :)
Yndislegasta bros í heimi :)
Best að smakka á þessum fingri, aldrei að vita nema hann bragðist vel :)
Hilda er dugleg að labba um með lillann til að róa hann
Þarna er maður alveg eldrauður :)
Æfingar hjá mömmu á brjóstagjafarpúðanum
Kúrt hjá stóru systur
Alltaf jafn gott að sofa í fanginu á henni
Knúsar litla blettatígurinn sinn :)
Allt gott að frétta :)
Það er allt gott að frétta af okkur Stefáni Sölva. Hann heldur áfram að blása út og ég má hafa mig alla við að borða og drekka nóg til að ég hverfi ekki :) Hann er alltaf að gera eitthvað í fyrsta sinn - fyrsta sinn í Smáralind, fyrsta sinn í IKEA, fyrsta sinn í nördabúðina Nexus :) Bara gaman. Hann á það til að halda mömmu uppi fram á nótt með því að taka stutta powernaps og vaka svo þess á milli, en þar sem mamman er nátthrafn kemur það ekki að sök. Hann sefur svo vel allan seinnipart nætur og fram til hádegis. Við förum sjaldnast á fætur fyrir hádegi. Svona er hið ljúfa líf !
Subscribe to:
Posts (Atom)




