Lilypie Third Birthday tickers

Wednesday, February 29, 2012

Fyrsta vinkið og fyrstu skrefin :)

Í gær kom mamma í heimsókn, Stefáni til mikillar ánægju enda afar hrifinn af ömmu sinni.  Þegar kom tími til að kveðja fylgdum við mömmu út að dyrum og ég sagði að venju við hann "vinkaðu nú til ömmu" og ætlaði svo að hreyfa hendina á honum eins og venjulega.  En viti menn, minn bara vinkaði sjálfur, algerlega án aðstoðar :)  Hann endurtók þetta svo í dag og kvaddi systur sína með flottu vinki þegar hún fór í skólann. Sama gerðist þegar við komum við niðri í vinnu, hann kvaddi félaga mína með vinki eins og hann hefði aldrei gert annað :) Annað merkilegt gerist í vinnunni í dag.  Björg vinkona mín hjálpaði Stefáni að reisa sig upp af gólfinu og lét hann standa. Hún sleppti honum svo og þá stóð hann kyrr örstutta stund og tók svo tvö skref áfram beint í fangið á henni !  Hann hefur aldrei gert neitt þessu líkt fyrr, spurning hvort hann fari að gera meira af þessu á næstunni :)

1 comment:

  1. Flottur strákur, til lukku með þennan áfanga :-)
    Hann verður farin að labba áður en þú veist af ;-)

    ReplyDelete