Saturday, June 30, 2012
Heill dagur í pössun hjá Hildu systur :)
Ég vann allan daginn frá 8 um morgun til hálf ellefu um kvöldið í forsetakosningunum. Litli karl var því í pössun hjá systur sinni allan daginn en hann hefur aldrei verið svona lengi fjarri mömmu sinni! Hann kom í heimsókn til mömmu sinnar í Laugardalshöll þegar systir hans kom til að kjósa og var ofsa kátur og glaður. Var ekkert svekktur þegar farið var með hann í burtu. Hann fór svo með Hildu niður á Austurvöll þar sem þau hittu Guðlaugu, Heiðar og litla Helga Steinar. Stefán æddi um allan völlinn og heilsaði upp á fólk og reyndi að sníkja sér mat og drykk :) Honum leist ekkert illa á rónana enda áttu þeir spennandi dósir ! Systur hans fannst það nú ekki alveg nógu spennandi. Hún þurfti að hlaupa á eftir honum í sífellu og einu sinni lét hann sig fallast á andlitið niður í blómabeð og sleit upp blóm í leiðinni! Þegar hann fékkst til að sitja kyrr í einhverja stund fór hann að rífa upp gras og gaf Helga Steinari að borða :) Þau skruppu líka á kaffihús þar sem Stefán fór á kostum, barði í glerið á kökuborðinu og æddi inn í eldhús að heilsa upp á liðið :) Þau enduðu svo á því að skreppa á leikvöll áður en haldið var heim á leið. Amma kom svo um kvöldmatarbil til að hjálpa til við að svæfa litla manninn enda engin brjóst á staðnum til að lúlla við. Amma þurfti aðeins að slást við prinsinn sem varð ansi svekktur þegar hann fattaði að hún væri að fara með hann inn í rúm og enn svekktari þegar hún slökkti ljósin. Hann gafst þó fljótt upp og sofnaði við söng ömmu sinnar. Þegar ég kom heim svaf hann sætt í rúminu sínu. Hann rumskaði svo rétt fyrir eitt og var ofsaglaður að finna þá mömmu og brjóstin á sínum stað :)
Friday, June 29, 2012
Sófaklifrari
Stefán Sölvi náði þeim áfanga í dag að klifra upp í sófann í fyrsta sinn :) Afar duglegur - en þetta mun auka stressið hjá mömmu ansi mikið !
Saturday, June 23, 2012
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn - allan daginn :)
Við Stefán Sölvi áttum dásamlegan dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Við vorum mætt kl. 10 þegar garðurinn opnaði og áttum deit við Sesselju og fjölskyldu :) Steinar Máni, Bryndís Eva og Stefán Sölvi byrjuðu á því að skoða dýrin. Það fyrsta sem við sáum voru kýrnar sem voru í gerðinu við innganginn. Krökkunum fannst mikið sport að fá að standa á veggnum umhverfis gerðið og horfa á þær :) Selirnir slógu líka í gegn og Stefáni fannst svínin æðisleg. Verst að hann ákvað að naga grindurnar á svínastíunni... mamman var ekki nógu ánægð með það ! Svo skelltum við okkur yfir í fjölskyldugarðinn. Við byrjuðum á því að fara á hoppudýnuna og krakkarnir skemmtu sér alveg konunglega :) Svo leyfðum við börnunum að leika í stóra sjóræningjaskipinu og leikkastalanum á smábarnaleikvellinum. Þeim fannst ekkert lítið gaman, prófuðu rennibrautir og löbbuðu út um allt :) Síðan fórum við að grillinu og grilluðum pylsur í hádegismatinn. Krílin voru í röð í kerrunum sínum, öll með smekki með sama þema þar sem ég varð að fá lánaðan smekk eftir að hafa enn og aftur gleymt að taka með og Sesselja hafði líka gleymt og keypti því pakka með 3 smekkum í Hagkaup :D Stefán borðaði rúmlega eina og hálfa pylsu takk fyrir ! Við renndum okkur svo einn hring í hringekjunni með krílin. Ég hélt við Stefán og Bryndísi Evu á hestum sem færðust upp og niður, Sesselja studdi Steinar Mána. Mikið stuð að prófa svona :) Endurtökum það við tækifæri! Við kvöddum svo fjölskylduna um hádegisbilið og allir héldu heim á leið að láta þreytta unga lúra :) Stefán Sölvi svaf til þrjú !!! Svanhildur systir hringdi og var þá komin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með strákana. Guðlaug Hrefna var þar líka með Helga Steinar. Við Stefán ákváðum því að skella okkur bara aftur í garðinn! Steinar og Óli voru kátir að sjá frænda og Stefáni fannst ekkert leiðinlegt að sjá þá heldur :) Meðan við biðum eftir að strákarnir kæmust að í eitt leiktækið fórum við Stefán um með Guðlaugu, Heiðari og Helga Steinari litla. Stefán fékk að æða út um allt og prufa brunabílinn sem stendur við litlu húsin við barnaleikvöllinn. Hann var ekkert smá ánægður með það :) Við prófuðum líka hoppudýnuna aftur en það var frekar erfitt þar sem núna var hún full af krökkum, um morguninn höfðum við hana fyrir okkur ! Við klykktum svo út með því að fá okkur ís og Stefán Sölvi var AFAR ánægður með það. Fórum heim um hálf sex, þreytt og sæl eftir góðan dag og mamman meira að segja orðin útitekin eftir heilan dag í sólinni! Hér eru nokkrar myndir frá deginum, margar teknar af Sesselju vinkonu þar sem mínar voru ekki nógu góðar. Því miður koma þær af einhverri ástæðu ekki í réttri tímaröð... en það kemur ekki að sök fyrir neitt nema OCD-ið mitt :)
Stuð að skoða svínin, nýhættur að naga grindina hérna..
Aðalsportið er að klifra UPP rennibrautina :)
Að leika með Bryndísi Evu undir sjóræningjaskipinu
Stuuuð í rennibraut !
Prófar brunabílinn :)
Steinar og Óli í uppblásnu kúlunum sem þeir biðu í næstum klukkutíma eftir að fara í !
Frændurnir Helgi Steinar og Stefán Sölvi spjalla
Æðislega gaman á hoppudýnunni :)
Krílin þrjú að borða hádegismatinn :)
Stefán að skoða kusurnar
Fyrsta sinn í hringekju !
Það var svo gaman að skoða svínin !
Litlu sætu hjónin !
Stuð að skoða svínin, nýhættur að naga grindina hérna..
Aðalsportið er að klifra UPP rennibrautina :)
Að leika með Bryndísi Evu undir sjóræningjaskipinu
Stuuuð í rennibraut !
Prófar brunabílinn :)
Steinar og Óli í uppblásnu kúlunum sem þeir biðu í næstum klukkutíma eftir að fara í !
Frændurnir Helgi Steinar og Stefán Sölvi spjalla
Æðislega gaman á hoppudýnunni :)
Krílin þrjú að borða hádegismatinn :)
Stefán að skoða kusurnar
Fyrsta sinn í hringekju !
Það var svo gaman að skoða svínin !
Litlu sætu hjónin !
Friday, June 22, 2012
Duglegi drengurinn :)
Stefán Sölvi heldur áfram að verða færari og færari í því að labba. Núna tekur hann stundum á rás og hleypur, mömmu til nokkurrar skelfingar enda jafnvægið ekki orðið alveg fullkomið ennþá :) Miðvikudaginn 13. júní sá ég hann í fyrsta skipti rísa upp beint af gólfinu en núna gerir hann það án nokkurra vandræða :) Honum finnst afar spennandi að æða af stað ef hann er settur niður úti og maður þarf að hafa sig allan við til að halda í við hann :) Elsku duglegi karl :)
Tuesday, June 19, 2012
Skemmtilegur hittingur í Grasagarðinum :)
Í dag hittum við Stefán Sölvi hana Sesselju vinkonu mína og krakkana hennar, þau Bryndísi Evu og Steinar Mána í Grasagarðinum. Krílin þrjú voru alveg í stuði til þess að hreyfa sig úti og brunuðu strax af stað að kanna garðinn. Steinar Máni valdi sér spennandi leið með löbbunni sinni og vildi fara stígana sem liggja á milli hæðanna í steinbeðunum við innganginn :) Hann fékk smá hjálp frá mömmu en var annars afar duglegur að keyra þarna í þrengslunum :) Bryndís Eva og Stefán Sölvi vöppuðu út um allt og auðvitað þurfti Stefán að taka upp steina og reyna að éta, reyna að rífa upp blóm og stela skiltum með merkingum á blómum ! Við röltum yfir brýrnar sem liggja yfir tjarnirnar og krökkunum fannst það spennandi. Stefán var reyndar pínu hræddur við að fara alla leið einn en var fljótur að jafna sig. Þau fóru svo að hlaupa sitt í hverja áttina og við Sesselja áttum fullt í fangi við að hemja þau :) Eftir rúmlega 40 mínútna fjör voru þau orðin þreytt og við héldum heim á leið. Alltaf gaman að kíkja í Grasagarðinn, verður örugglega ekki síðasta skiptið sem við kíkjum þangað :)
Bryndís Eva og Steinar Máni að leika við steinbeðin
Stefán að stela blómaskilti !
Stefáni fannst ekkert leiðinlegt að bruna þarna um
Systkinin að rölta í brekku
Bryndís Eva að pósa :)
Steinar Máni stoppar og tekur stöðuna :)
Strákarnir á hlaupum
Stefán brunar fram úr hinum
Bryndís Eva og Steinar Máni að leika við steinbeðin
Stefán að stela blómaskilti !
Stefáni fannst ekkert leiðinlegt að bruna þarna um
Systkinin að rölta í brekku
Bryndís Eva að pósa :)
Steinar Máni stoppar og tekur stöðuna :)
Strákarnir á hlaupum
Stefán brunar fram úr hinum
Sunday, June 17, 2012
17. júní
Stefán Sölvi hefur nú upplifað 17. júní í annað sinn. Við litla fjölskyldan fórum saman niður í bæ og byrjuðum á því að kíkja í Hljómskálagarðinn. Þar hittum við Svanhildi og fjölskyldu og Guðnýju með Hrafndísi Jónu. Eftir gott spjall löbbuðum við að Austurvelli þar sem ég ljósmyndaði börnin fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni, eins og ég gerði í fyrra :) Við röltum svo yfir í Kolaportið og hittum þar Júlíönu og Matta og Jónu, ömmu Hildu. Við röltum svo af stað í áttina að Tjörninni og hittum Svanhildi og co og Guðnýju og Hrafndísi aftur, í þetta sinn með Kristínu Ósk systur Guðnýjar líka. Skyndilega kom Raggi pabbi Hildu stökkvandi og bauð okkur upp á hressingu í Iðnó. Stefáni fannst nú frekar leiðinlegt að sitja bara kyrr í barnastólnum og fékk að rölta af stað inn í salinn. Þar fann hann sér gamlan karl úti í horni til að tala við :) Við röltum svo heim á leið eftir fínan þjóðhátíðardag í ágætisveðri :)
Helgi Steinar hress í fangi ömmu
Sæti karlinn var að fagna 17. júní í fyrsta sinn :)
Mæðgurnar Guðný og Hrafndís í stuði
Óli með smá sýningu fyrir Stefán
Þjóðhátíðarmyndataka
Bara stuð
Flottu börnin mín :)
Sátum úti og fengum okkur hressingu í Iðnó
Helgi Steinar hress í fangi ömmu
Sæti karlinn var að fagna 17. júní í fyrsta sinn :)
Mæðgurnar Guðný og Hrafndís í stuði
Óli með smá sýningu fyrir Stefán
Þjóðhátíðarmyndataka
Bara stuð
Flottu börnin mín :)
Sátum úti og fengum okkur hressingu í Iðnó
Sunday, June 10, 2012
Skemmtilegur dagur með Guðnýju og Hrafndísi
Við Stefán Sölvi eyddum skemmtilegum degi með þeim mæðgum Guðnýju og Hrafndísi. Fyrst fórum við að Bakkatjörn að gefa öndunum. Hrafndísi fannst það ekki leiðinlegt, kastaði brauði til andanna og frekustu mávarnir fengu líka sitt :) Stefáni fannst gaman að sjá fuglana en honum fannst frekar fúlt að hann fengi ekkert brauð :) Síðan fórum við á leikvöllinn við leikskólann hennar Hrafndísar, Grandaborg. Stefán og Hrafndís fóru saman á gormaleiktæki og litla fannst það mjög gaman :) Hrafndís fór svo að róla enda hennar uppáhald en Stefáni fannst það ekki skemmtilegt nema rétt fyrst. Honum þótti hinsvegar skemmtilegt að éta sand og tréflísar úr göngustígnum :) Þegar við vorum búin að skemmta okkur á leikvellinum fórum við í bakarí til að kaupa eitthvað með kaffinu. Stefán slapp á bak við afgreiðsluborðið og náði sér í tvær innpakkaðar brúnkökur ! Mér tókst að bjarga þeim með naumindum og við fórum heim þar sem litli púkinn fékk að prófa smá kökubita. Krakkarnir léku sér góð saman meðan við Guðný spjölluðum, þurfti nokkrum sinnum að spretta upp til að bjarga heimili Guðnýjar frá hryðjuverkamanninum en annars gekk þetta vel. Við enduðum svo daginn í mat hjá ömmu svo þetta var sannarlega frábær dagur :)
Mæðgurnar að gefa öndunum
Stefán að heimta andabrauð :)
Gaman að gefa þessum flottu fuglum
Stefán fylgist spenntur með
Leikið á gormatækinu
Rosa gaman
Stuð í rólunni - en bara í smá stund
Á ferð og flugi
Fann þennan fína bolta
Borðar tréflís !
Reynir að klifra upp rennibrautina !
Sæti karl
Að láta sandinn renna milli fingranna
Leikið með Hrafndísi
Félagarnir að fá sér Cheerios
Hrafndís fóðrar litla villidýrið :)
Mæðgurnar að gefa öndunum
Stefán að heimta andabrauð :)
Gaman að gefa þessum flottu fuglum
Stefán fylgist spenntur með
Leikið á gormatækinu
Rosa gaman
Stuð í rólunni - en bara í smá stund
Á ferð og flugi
Fann þennan fína bolta
Borðar tréflís !
Reynir að klifra upp rennibrautina !
Sæti karl
Að láta sandinn renna milli fingranna
Leikið með Hrafndísi
Félagarnir að fá sér Cheerios
Hrafndís fóðrar litla villidýrið :)
Subscribe to:
Posts (Atom)






