Stefán Sölvi gat auðvitað ekki látið nægja að heimsækja eitt útland, hann varð að prófa að fara til fleiri landa :) Við brunuðum ásamt Hildi, Sören og Sonju til Helsingör þar sem við stigum upp í ferjuna Tycho Brahe sem flutti okkur á 20 mínútum yfir til Helsingborgar í Svíþjóð. Stefáni fannst stólarnir í ferjunni flottir og fríhöfnin var agalega skemmtileg. Hann notaði fínu barbapapahandleggina sína til að grípa í hluti um leið og ég gekk fram hjá og varð afar sár þegar ég tók af honum nammipakkningu sem hann hafði náð í :) Ég bætti honum það upp með því að leyfa honum að leika sér að namminu sem ég keypti. Þegar í land var komið fórum við á kóreanskan veitingastað. Stefán fékk barnamat en svo fékk hann að bragða bæði forréttinn og eftirréttinn hjá mér. Honum fannst súpan sem ég fékk í forrétt afar góð, þó svo að í henni væri slatti af svörtum pipar ! Síðan fór hópurinn á röltið um miðborg Helsingborgar. Við skoðuðum gamlan kirkjugarð og fórum upp á Kårnan, sem er turn sem stendur á hæð fyrir ofan miðbæinn. Stefán Sölvi og Sonja sofnuðu og þá skelltum við fullorðna fólkið okkur á kaffihús :) Svo kíktum við aðeins í búðir og fórum svo út á leikvöll sem var í almenningsgarði skammt frá ferjuhöfninni. Stefáni fannst afar gaman í rólunum og fékk að prófa ýmis önnur tæki sem honum fannst líka skemmtileg. Það var þarna lítill rauður bolli sem maður sneri í hringi, honum fannst það fyrst alveg æðislegt en svo hefur honum sennilega farið að svima því skyndilega var ekki gaman lengur ! Eftir að Sonja og Stefán höfðu fengið góða útrás á leikvellinum fórum við aftur í ferjuhöfnina og sigldum aftur til Danmerkur. Stefáni fannst gaman að horfa á öldurnar skella á bryggjunni þegar ferjan var að fara :) Fín ferð, nú hefur Stefán heimsótt tvö lönd :)
Kominn í ferjuna og horfir út um gluggann
Stólarnir voru spennandi
Fékk að geyma nammið hennar mömmu :)
Hópurinn fríði við Kårnan
Við Stefán á götu í miðbænum
Gaman á leikvellinum :)
Litli rólusnillingurinn
Horfir á öldurnar þegar ferjan var að fara
Thursday, April 12, 2012
Monday, April 9, 2012
Danmarks Akvarium
Á öðrum í páskum skelltum við okkur í Danmarks Akvarium enda rigning úti og ekkert spennandi að vera utandyra.. Krílunum fannst ekkert smá gaman að skoða fiskana enda margir hverjir mjög litríkir og flottir. Þarna voru líka skjaldbökur og krókódílar en Stefáni fannst sérstaklega gaman að fylgjast með skjaldbökunum synda. Þarna var borð með litum og blöðum svo börnin gætu teiknað fiskana, Sonja settist niður og litaði og lék sé með litina, Stefán fékk líka að prófa að setjast niður en hann skemmti sér bara við að éta litina :) Við fengum okkur hressingu í kaffiteríunni og fórum svo í kjallarann þar sem börnin fengu að snerta alvöru sjávardýr í sýningarkerjum. Stefáni fannst reyndar aðallega gaman að sulla í vatninu en náði reyndar taki á einum krossfiski sem hann svipti upp og hefði án efa stungið í munninn ef Hildur hefði ekki haft eftirlit með honum :) Þetta náðist allt á myndband :D Skemmtilegur dagur fyrir okkur öll :)
Stefán skoðar fiska, skjaldbökur og krókódíl :)
Skemmtilegar skötur !
Sonju fannst þær flottar líka
Var alveg heillaður af þessu
Krílin fengu að prufa að setjast á þennan hákarl :)
Skemmtilegar skötur !
Sonju fannst þær flottar líka
Var alveg heillaður af þessu
Krílin fengu að prufa að setjast á þennan hákarl :)
Alveg heillaður af klettastrandarbúrinu, en þar var reglulegur öldugangur
Saturday, April 7, 2012
Påskefrokoster :)
Á föstudeginum langa og laugardeginum fyrir páska vorum við Stefán svo heppin að taka þátt í tveimur påskefrokoster :) Á föstudaginn voru það foreldrar Sörens sem komu og snæddu með okkur og fannst Stefáni gaman að heilsa upp á nýtt fólk og prófa nýjan mat. Á laugardaginn kom svo vinafólk Hildar og Sörens og ekki fannst Stefáni það síðra. Honum fannst bjórdósirnar í höndum karlanna ansi spennandi, er greinilega sonur mömmu sinnar... Hann fékk að smakka sitt lítið af hverju en fannst sérstaklega gott að fá rúgbrauð með túnfiskssalati og brauð með karrísíld :) Litli sælkerinn minn :) Hann lenti í smá óhappi þegar hann var búinn að borða, datt fram fyrir sig og sprengdi vörina. Það var mikið grátið og blóðið flæddi, en til allrar lukku var hann fljótur að jafna sig. Hann fékk að vera vakandi til níu og taka þátt í fjörinu, þótti ansi fúlt þegar mamma fór bara inn og svæfði hann. Mikill partímaður hér á ferð :)
Påskefrokost á laugardegi
Påskefrokost á laugardegi
Wednesday, April 4, 2012
Stefán kynnist grasi :)
Stefán Sölvi fékk að fara út á grasflötina við húsið í dag. Hann hefur aldrei kynnst grasi fyrr, enda svo lítill í fyrra. Honum leist afar vel á grasið, skreið um allt og reyndi að éta laufblöð og annað sem hann fann í grasinu. Honum fannst spennandi að skríða um pallinn og garðinn og skoða það sem þar var að finna :D
Skriðið í grasi í fyrsta sinn !
Gaman að bisa í garðinum
Þar var fullt af spennandi hlutum :)
Skriðið í grasi í fyrsta sinn !
Gaman að bisa í garðinum
Þar var fullt af spennandi hlutum :)
Farið í skógarferð
Við skelltum okkur í skógarferð með Hildi og Sonju litlu. Stefáni fannst gaman að vera úti og brosti út að eyrum. Skógurinn var allur að lifna við og skógarbotninn var þakinn blómum. Við hittum konur með þrjá stóra hunda sem komu og heilsuðu upp á okkur. Sonju litlu fannst þeir aðeins of ágengir! Stefán sofnaði svo og svaf mestan hluta gönguferðarinnar enda afar gott að sofa í fersku útiloftinu :)
Kátur í skóginum
Vildi gjarnan fá að taka myndir líka :)
Hundarnir stóru sem heilsuðu upp á okkur
Sætu krílin í kerrunum sínum :)
Kátur í skóginum
Vildi gjarnan fá að taka myndir líka :)
Hundarnir stóru sem heilsuðu upp á okkur
Sætu krílin í kerrunum sínum :)
Tuesday, April 3, 2012
Fyrsta utanlandsferðin !!
Stefán Sölvi ævintýramaður fór í fyrsta sinn til útlanda í dag. Við mættum út á flugvöll um klukkan ellefu og eyddum næstu tveimur tímum í að skoða okkur um í flugstöðinni og fá okkur hressingu. Stefán starði á allt stórum augum og fannst gaman að bruna milli búðanna með mömmu :) Svo stigum við upp í vélina rétt fyrir eitt og tókum á loft kl. 13:15. Við vorum svo heppin að fá tvö sæti og höfðum því pláss til að hreyfa okkur og leika. Stefán fékk bæði barnamáltíð og ungbarnamáltíð, en í þeirri fyrri var kjúklingur með hrísgrjónum og í þeirri seinni skyr og banani. Hann fékk sér eitthvað af þessu öllu og naut þess í botn. Hann sparkaði svo afgangnum af kjúklingnum niður á gólf þar sem hann lenti á öðru skónum mínum sem varð útataður í sósu og hrísgrjónum. Hann sofnaði svo fljótlega eftir matinn og svaf í heila tvo tíma. Hann vaknaði um hálftíma fyrir lendingu og var í góðu skapi. Við horfðum svo saman á Danmörku birtast þegar vélin lækkaði flugið og hann horfði hissa út þegar við lentum. Við brunuðum svo niður að farangursböndunum þar sem mér tókst að keyra töskurnar tvær út á vagni með einni hendi og keyra kerruna með Stefáni með hinni ! Hildur vinkona tók á móti okkur og saman fórum við til Lynge þar sem Sören og Sonja litla biðu okkar. Stefán var sprækur í nokkurn tíma en sofnaði loks sætt, þreyttur eftir ævintýri dagins. Hér erum myndir frá ferðinni:
Herrann í flugstöðinni, vatnsflaskan hans "datt" í gólfið :)
Alltaf sami sjarmörinn
Svaf sætt í 2 tíma
Hér sér hann Danmörku í fyrsta sinn
Herrann í flugstöðinni, vatnsflaskan hans "datt" í gólfið :)
Alltaf sami sjarmörinn
Svaf sætt í 2 tíma
Hér sér hann Danmörku í fyrsta sinn
Subscribe to:
Posts (Atom)
