Við Stefán Sölvi höfðum nóg að gera um síðustu helgi. Á föstudaginn fórum við í afmæli til Eyrúnar, dóttur hennar Sifjar, en hún varð 5 ára þennan dag. Það var mikið fjör í afmælinu en Stefán var ekki alveg í stuði og lagði sig því um stund :) Á laugardaginn fórum við í ungbarnasundið með Magneu og var herrann ekki alveg upp á sitt besta þar, vildi eiginlega helst slappa af í fangi og fá að fljóta. Hann kafaði samt tvisvar eins og herforingi :) Á laugardagskvöldið fórum við í heimsókn til Sigrúnar og Víðis og höfðum það huggulegt þar. Stefán Sölvi samþykkti ekki að liggja lengi á gólfinu en sættist á að horfa á sjónvarpið með okkur gegn því að fá að hnoðast nóg í fangi :) Á sunnudaginn fórum við fyrst til Helenar systur en þar voru samankomin amma, Svanhildur, Guðlaug, Magga, Óli, Steinar og Arna Rún, auk húsráðenda að sjálfsögðu. Stefáni fannst gaman að venju að fylgjast með stóru krökkunum og gott var að fá knús frá öllum frænkunum :) Næst var svo afmæli hjá Dodda hennar Kristínar Önnu, en hann varð 4 ára þann 11. september. Þar var mikið um dýrðir og fullt af fólki sem var til í að kjá framan í drenginn og halda á honum :) Þegar gestirnir voru farnir fékk Stefán Sölvi gullfallega prjónaða peysu og skrímslabuxur að gjöf frá Kristínu. Doddi fékk eins peysu og við klæddum þá í peysurnar og mynduðum þá saman. Alveg eins og bræður sitjandi í sófanum í flottu peysunum sínum :) Þetta var sem sagt afar góð helgi hjá okkur mæðginum.
Stefán glaðhlakkalegur í nýju peysunni
Fallegu drengirnir í fínu peysunum sínum
Kíkja á hvern annan með aðdáun :)
Kristín knúsar strákana sína :)
Wednesday, September 21, 2011
Thursday, September 15, 2011
Dagur með Sif og Ægi :)
Sif vinkonu vantaði aðstoð meðan hún jafnar sig eftir aðgerð svo ég og Stefán Sölvi komum og eyddum deginum með henni og Ægi. Ég sá um að lyfta Ægi þar sem hún má ekki bera neitt og reyna á sig. Þeir félagar Ægir og Stefán voru afar hressir allan daginn. Stefán horfði á Ægi leika sér með dótið og fór að sýna dóti mun meiri áhuga eftir það. Var eins og að Ægir hefði fengið hann til að fatta um hvað málið snerist :) Stefán fékk að prófa Bumbo stólinn hans Ægis og það var ekki létt að koma feitu lærunum hans í fótagötin :) Stefáni fannst þetta hinsvegar frekar flott, ánægður með að geta loksins verið uppréttur. Ægir hafði mikinn áhuga á Stefáni og vildi gjarnan fá að snerta hann, það fékk hann líka að gera undir eftirliti. Verður gaman að sjá þessa pjakka leika sér saman í framtíðinni :)
Félagarnir leika sér, auðvitað vill Stefán fá dótið sem Ægir er með :)
Ægir leggur hendina kumpánalega á öxlina á Stefáni :)
Spekingarnir spjalla
Stefán fékk að prófa Bumbo stólinn, var mjög montinn
Sif að fá tvíburafílinginn
Ægir að vera aaa góður við Stefán
Ægir leggur hendina kumpánalega á öxlina á Stefáni :)
Spekingarnir spjalla
Stefán fékk að prófa Bumbo stólinn, var mjög montinn
Sif að fá tvíburafílinginn
Ægir að vera aaa góður við Stefán
Bara aðeins að gæla við kollinn á honum :)
Saturday, September 10, 2011
Magnea með í ungbarnasund
Hún Magnea var svo góð að fara með okkur í ungbarnasund í dag. Stefáni fannst gott að hvíla á öxlinni á henni og láta kroppinn fljóta í vatninu :) Magnea fékk að gera æfingar með krúttikarlinum en þegar við reyndum að fá hann til að standa í lófanum á mér gekk það ekki, hann fékk bara brauðfætur :) Erla sundkennari tók hann og lét hann sitja í lófanum á sér og hann skælbrosti þegar hún hélt honum hátt á loft :) Hér eru myndir af prinsinum með Magneu í lauginni :)
Gæinn kominn í laugina með Magneu sinni :)
Gott á kúra á öxlinni á henni
Ó svo afslappandi :)
Gæinn kominn í laugina með Magneu sinni :)
Gott á kúra á öxlinni á henni
Ó svo afslappandi :)
Wednesday, September 7, 2011
Vinkvennahittingur :)
Á miðvikudaginn fórum við Stefán Sölvi til Hrundar vinkonu minnar í Vesturbænum á vinkvennahitting :) Ég, Sif, Stína og Kata vinkonur mínar mættum keikar með börnin okkar og Hrund sem er barnlaus fékk allt sem fylgir barnastússinu beint í æð :) Það var verið að gefa brjóst, skipta á bleium og elda lítinn fjörkálf út um allt :) Þetta var alveg ofsalega gaman, við lögðum saman í púkkið og vorum með mat og eftirrétti og svo var spjallað og hlegið saman :) Þetta verður bara fyrsti svona hittingur af mörgum spái ég :) Hér eru myndir sem teknar voru við þetta tækifæri:
Herra Stefán með skrítin svip
Stefán Sölvi, Ægir og Vigdís Una :)
Vigdís Una sæta mús, dóttir Stínu
Ægir krúttkarl, sonur Sifjar
Vilhjálmur Jarl orkubolti :), sonur Kötu. Iðunn systir hans mætti en náðist ekki á mynd :)
Herra Stefán með skrítin svip
Stefán Sölvi, Ægir og Vigdís Una :)
Vigdís Una sæta mús, dóttir Stínu
Ægir krúttkarl, sonur Sifjar
Vilhjálmur Jarl orkubolti :), sonur Kötu. Iðunn systir hans mætti en náðist ekki á mynd :)
Sunday, September 4, 2011
Afmælisveislur :)
Stefán Sölvi fór í tvær afmælisveislur um helgina. Sú fyrri var á laugardaginn hjá henni Hrafndísi Jónu sem verður tveggja ára þann 6. september. Stefán var bara hress í veislunni, naut þess að fá athygli og sjá aðra krakka. Hann varð samt frekar þreyttur á þessu og steinsofnaði í fangi Kristínar Óskar móðursystur afmælisbarnsins :). Á sunnudaginn fórum við svo í afmæli Örnu Rúnar frænku sem verður 4 ára þann 5. september. Ekki fékk Stefán minni athygli þar, mamma fékk hann varla í fangið allan tímann. Frændur hans og frænkur af yngri kynslóðinni skemmtu honum vel en aðeins þurfti að stoppa afmælisbarnið í að leika sér að höfðinu á honum... Semsagt, alger partíhelgi hjá Stefáni sem er orðinn vel sjóaður í veislum og mannfögnuðum :)
Hrafndís Jóna afmælisprinsessa
Stefán að detta út í fanginu á Kristínu Ósk
Stefán hjá Guðlaugu frænku í afmæli Örnu Rúnar
Stefán, Guðlaug og afmælisprinsessan Arna
Stefán og Úlfhildur frænka :)
Stefán að sofna í fangi Svanhildar frænku
Hrafndís Jóna afmælisprinsessa
Stefán að detta út í fanginu á Kristínu Ósk
Stefán hjá Guðlaugu frænku í afmæli Örnu Rúnar
Stefán, Guðlaug og afmælisprinsessan Arna
Stefán og Úlfhildur frænka :)
Stefán að sofna í fangi Svanhildar frænku
Saturday, September 3, 2011
Grímubúningspartí !!
Stefán Sölvi brá undir sig betri fætinum og mætti í tvö grímubúningspartí með mömmu í kvöld :) Partíin voru haldin til að hita upp fyrir grímuball sem mamma var að fara á seinna um kvöldið. Stefán kom klæddur sem stúlka að nafni Stefanía og vakti mikla lukku :) Hann var vakandi í báðum partíum, sofnaði aðeins á leiðinni heim og var svo ELDHRESS þegar mamma ætlaði á ballið. Svo hress að hann fékk sitt fyrsta alvöru hláturskast í fanginu á Hildu systur. Var yndislegt að sjá hann og heyra í honum, hann kastaði alveg höfðinu aftur og hló með galopinn munn :) Mamma skrapp á ballið og eftir smá slagsmál sofnaði Stefán/Stefanía í ömmustólnum. Mamma gat samt ekki verið lengi fjarri gullinu sínu og var komin heim eftir einn og hálfan tíma :)
Stefanía litla komin í klærnar á vampíru :)
Hún slapp til allrar lukku heil á húfi :)
Magnea bleika barnapían fékk að passa Stefaníu
Stefanía og ein svaka bleik
Grýla kom og ætlaði að troða Stefaníu í pokann sinn en hún slapp því hún er svo góð :)
Stefanía litla komin í klærnar á vampíru :)
Hún slapp til allrar lukku heil á húfi :)
Magnea bleika barnapían fékk að passa Stefaníu
Stefanía og ein svaka bleik
Grýla kom og ætlaði að troða Stefaníu í pokann sinn en hún slapp því hún er svo góð :)
Hilda systir kom með í ungbarnasund :)
Hilda systir skellti sér með okkur í ungbarnasundið í dag. Stefáni Sölva fannst það ekkert verra að hafa okkur báðar til að stjana við sig :) Hilda fékk að prófa að gera ýmsar æfingar en lagði ekki alveg í að láta hann kafa :) Mamma lét unga manninn kafa í fyrsta sinn, gerðum það tvisvar og gekk bara vel. Erla kennari fylgdist með í fyrsta sinn til að vera viss um að allt færi rétt fram. Stefán hélt sig við mynstrið úr síðustu tveimur tímum, steinsofnaði eftir sundið, sæll og afslappaður :)
Systkinin komin í laugina :D
Flottur hjá Hildu sinni
Sætu börnin mín :)
Við Stefán Sölvi gerum æfingar
Hér undirbý ég köfun
Hér er hann í kafi !
Og svo kemur hann upp !
Systkinin komin í laugina :D
Flottur hjá Hildu sinni
Sætu börnin mín :)
Við Stefán Sölvi gerum æfingar
Hér undirbý ég köfun
Hér er hann í kafi !
Og svo kemur hann upp !
Subscribe to:
Posts (Atom)
