Jæja, mamma var enn í sundbanni svo að Stefán Sölvi fór í ungbarnasund með þeim Ólöfu og Magneu :) Honum fannst bara mjög gaman að hafa tvær dömur til að stjana við sig og skemmti sér vel í tímanum. Mér sýndist þeim stúlkunum ekkert leiðast heldur :) Hér eru nokkrar myndir frá sundtímanum :)
Ólöf stundar kraftlyftingar, lætur herrann standa í lófanum á sér
Þarna er minn maður að synda til baka frá því að reyna að ná krókódílnum
Gæinn með fylgdardömum
Hér er Stefán Sölvi að fara í gegnum regnbogann
Spennandi að sjá mismunandi lita boga fyrir ofan mann þegar maður syndir
Hér er minn maður að borða fisk
Rosa gaman að naga sundleikföng :)
Takk fyrir að fá að fara með, það er svo gaman með Stefáni Sölva í sundi :D
ReplyDeleteKveðja
Magnea
Það var rosa gaman að vera með svona dásamlegum stráki í sundi. Ég var ekki alveg að þora að setja hann í kaf en Magnea var alveg með það á hreinu.
ReplyDeleteKveðja,
Ólöf
Frábært að fá ykkur til að bjarga tímanum, litli karl var hæstánægður með ykkur :)
ReplyDelete