Lilypie Third Birthday tickers

Tuesday, August 30, 2011

Fyrsta nóttin í barnarúmi :)

Stefán Sölvi er búinn að fá barnarúmið sitt uppsett og svaf í fyrsta skipti í því í nótt.  Steinar Sverrir frændi hans átti rúmið, það sofa sem sagt bara strákar með upphafsstafina SS í þessu rúmi :)  Hér fyrir neðan er mynd af prinsinum í rúminu í nótt:

Monday, August 29, 2011

Myndir frá ungbarnasundi

Stefán Sölvi er ánægður í sundinu og fékk að prófa að kafa í fyrsta skipti núna á laugardaginn :)  Svanhildur frænka var með og tók myndir frá bakkanum.  Hlakka til að mæta í næsta tíma með hann :)
 Mæðginin komin ofan í laugina :)
 Stefán er sposkur á svip þarna
 Eitthvað efins þarna í fyrstu
 En svo naut hann þess að fljóta í vatninu
 Sætasti sundkappinn
 Við syngjum fyrir börnin um leið og við gerum æfingar
 Þarna er ég að blása loftbólur fyrir hann til að ná athygli hans
 Hér er verið að reyna að fá hann til að teygja sig eftir dótinu
Hér er hann að koma úr kafi í fyrsta sinn :)

Thursday, August 25, 2011

Systkinin að tala saman :)


Nokkrar prinsamyndir :)

 Hilda systir er svo skemmtileg
 Gaman að vera í sófanum hjá Hildu
Hlustar hrifinn á systur sína tala
 Krúttbrosið
 Ljúfasta músin
 Alvarlegur !
Alltaf að reyna að setjast upp í ömmustólnum :)

Saturday, August 20, 2011

Stefán Sölvi byrjar í ungbarnasundi

Í dag byrjaði Stefán Sölvi í ungbarnasundi.  Við erum í sundi hjá Erlu í Suðurbæjarlauginni í Hafnarfirði.  Við vorum í styttri tíma í lauginni í dag þar sem byrjað var á því að sýna okkur aðstöðuna og segja okkur hvernig fyrirkomulagið á tímunum væri.  Eftir kynninguna klæddi ég krílið í flottu Spiderman sundskýluna og svo skelltum við okkur í laugina.  Stefán var steinhissa á þessu öllu en var alveg rólegur.  Við fórum að gera æfingar eins og að lyfta börnunum upp og niður (frekar erfitt fyrir aumingjan mig að lyfta litla dunk), láta þau fara frá okkur og að okkur og láta þau fara í hringi á bakinu.  Við drógum þau svo um laugina með hendurnar um axlirnar og átti þetta að fá þau til að sprikla og slá í vatnið.  Stefán gerði það í lokin, skvetti vatni á barnið við hliðina á :)  Við fórum öll í hring og sögðum nöfnin á börnunum og aldurinn.  Flest börnin eru 4-6 mánaða, held við séum þrjú með þriggja mánaða börn.  Eftir tímann var Stefán svo þreyttur að hann steinsofnaði þegar ég fór í sturtuna :)  Velheppnaður fyrsti tími, verður gaman að fara aftur í næstu viku :D
Flotta sundskýlan hans Stefáns Sölva

Friday, August 19, 2011

Nýjustu tölur !!!!

Í dag fór Stefán Sölvi í þriggja mánaða skoðun.  Hann var fyrst lengdarmældur og reyndist vera orðinn 64 cm.  Svo var honum skellt á vigtina og .... er orðinn 8665g !! ÚFF !  Hjúkkan stakk upp á því að ég hætti að gefa honum næturgjafir og gæfi honum vatn í staðinn.  Roðn.  Aumingja karlinn minn !  Síðan var hið skelfilega næst - tvær bólusetningarsprautur.  Fyrst á meðan læknirinn var að skoða hann var Stefán bara hress, skælbrosti til hans og spriklaði.  Síðan kom fyrri sprautan og þá varð hann fyrst hissa, síðan fór hann að hágráta.  Ég reyndi að hugga hann en þegar kom að sprautu nr. 2 grunaði hann þegar að eitthvað vont væri í bígerð og fór að gráta aftur.  Hann hágrét líka eftir seinni sprautuna, grét alla leið fram á gang og áfram þrátt fyrir að hafa fengið sopa inni á biðstofu.  Þegar heim kom var hann enn lítill í sér og aumur.  Hann var svo fínn allan daginn en þegar hann vaknaði um níuleytið um kvöldið var hann kominn með 39,5 stiga hita !  Elsku karlinn var svo slappur og leið svo illa !  Hann fékk svo hitalækkandi stíl og var hress og kátur eftir klukkutíma.  Vonandi verður næsta bólusetning átakalaus !

Sumarbústaðarferð í Munaðarnes

Við Stefán Sölvi skelltum okkur í sumarbústað með Svanhildi og fjölskyldu og mömmu líka.  Bústaðurinn var í Munaðarnesi í Borgarfirði í gullfallegu umhverfi.  Dvölin var alveg frábær og við Stefán höfðum huggulegt í sér herbergi :)  Stefán fékk fullt af athygli frá öllum og naut hverrar sekúndu :)  Amma vaggaði honum og spjallaði, strákarnir léku við hann og Svanhildur frænka gekk um með hann :)  Mér til mikillar gleði héldu þrjár uglur til við bústaðinn og mættu á hverju kvöldi og svifu um nágrennið :)  Skemmtilegt fyrir fuglanördinn !  Við vorum frá sunnudegi fram á miðvikudag í bústaðnum.  Við skruppum niður í Borgarnes tvisvar sinnum og fórum líka og skoðuðum fossinn Glanna.  Stefán hafði aldrei áður séð hann (enn eitt fyrst) og hafði heldur aldrei gist í alvöru sumarbústað :)  Þarna var heitur pottur sem ég nýtti mér eitt kvöldið, Stefán getur örugglega prófað á næsta ári en í þetta skiptið var hann inni í dekri hjá Svanhildi frænku.   Góðir dagar í góðum félagsskap!
 Stefán Sölvi í besta yfirlæti í sófanum að njóta aðdáunar
 Óli bað um þessa uppstillingu og mynd tekna af speglinum :)
 Ánægður karl í ömmustól
 Huggulegheit í sófanum :)
 Amma að spjalla við unga manninn
 Stefán Sölvi að horfa á sjónvarpið með ömmu
 Stefán reynir að setjast upp í ömmustólnum til að geta spjallað betur við Óla
 Ánægður lítill karl
 Við fossinn Glanna
Að rífa í sig bókina sína