Lilypie Third Birthday tickers

Monday, July 4, 2011

Grill- og gróðursetningarferð 29. júní

Ég steingleymdi að segja frá ferð okkar Stefáns Sölva með starfsmönnum Umhverfis- og samgöngusviðs upp í Miðmundardal til að gróðursetja trjáplöntur.  Veðrið var hreint yndislegt, sólin skein og allir nutu þess að vera úti.  Stefán svaf reyndar af sér alla gróðursetningu, var bara í bílstólnum sínum og naut útiloftsins.  Þegar við vorum búin að gróðursetja voru grillaðar pylsur.  Rétt áður en haldið var heim á leið var Stefán tekinn aðeins upp úr stólnum en hann sofnaði strax aftur þegar lagt var af stað í bæinn.  Búið er að ákveða að fara þarna árlega að planta trjám, á næsta ári verður Stefán örugglega mun fjörugari :)  Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá þessari ferð:
 Við Stefán í Miðmundardal
 Aðeins tekinn upp til að sýna hann
 Ef grannt er skoðað sést stóllinn hans Stefáns upp við grávíðisrunna :)  Þarna svaf hann sæll !
Gott að sofa úti í náttúrunni :)

Nýjustu krúttamyndir

 Einn í stuði klukkan fjögur um nótt!
 Á uppáhaldsstaðnum
 Krílríkur í allri sinni dýrð :)
 Yndislegasta bros í heimi :)
Best að smakka á þessum fingri, aldrei að vita nema hann bragðist vel :)
 Hilda er dugleg að labba um með lillann til að róa hann
 Þarna er maður alveg eldrauður :)
 Æfingar hjá mömmu á brjóstagjafarpúðanum
 Kúrt hjá stóru systur
 Alltaf jafn gott að sofa í fanginu á henni
Knúsar litla blettatígurinn sinn :)

Allt gott að frétta :)

Það er allt gott að frétta af okkur Stefáni Sölva.  Hann heldur áfram að blása út og ég má hafa mig alla við að borða og drekka nóg til að ég hverfi ekki :)  Hann er alltaf að gera eitthvað í fyrsta sinn - fyrsta sinn í Smáralind, fyrsta sinn í IKEA, fyrsta sinn í nördabúðina Nexus :)  Bara gaman.  Hann á það til að halda mömmu uppi fram á nótt með því að taka stutta powernaps og vaka svo þess á milli, en þar sem mamman er nátthrafn kemur það ekki að sök.  Hann sefur svo vel allan seinnipart nætur og fram til hádegis.  Við förum sjaldnast á fætur fyrir hádegi.  Svona er hið ljúfa líf !

Monday, June 27, 2011

Sex vikna skoðun

Við Stefán Sölvi mættum í sex vikna skoðun í morgun.  Litli gaur var fyrst lengdarmældur og er orðinn 59,5 cm.  Síðan var honum skellt á vigtina og þá glennti hjúkkan upp augun.  Hann er orðinn 6280g !!  Glæsilegur piltur !!
Síðan skoðaði læknir litla piltinn og það fannst honum frekar leiðinlegt.  Allt kom vel út og við mætum næst í 9 vikna skoðun.  Spennandi að vita hverjar tölurnar verða þá !

Myndir frá bústaðarferð

 Krúttilegur að vanda innvafinn í teppi :)
 Slappað af utandyra með Svanhildi frænku
 Fegurðarblundur í rúminu hennar Möggu
 Stefán Sölvi spjallar við Möggu frænku
 Svanhildur rölti með hann um gólf þegar hann varð órólegur
 Alger lúxus :)
 Svo lagði hann sig hjá Hildu systur :D
Alveg snar þegar hann var klæddur í útifötin !

Sunday, June 26, 2011

Stefán Sölvi fer í fyrsta sinn út úr bænum :)

Í dag skelltum við Stefán Sölvi okkur í heimsókn til Möggu systur sem er í sumarbústað uppi í Húsafelli.  Mamma og Hilda Margrét voru með í för, Svanhildur og fjölskylda komu líka.  Sá litli svaf alla leiðina upp eftir og rumskaði akkúrat þegar við komum að bústaðnum.  Hann naut svo dagsins vel því alltaf var einhver til staðar tilbúinn til að knúsa hann og ganga um með hann.  Algert lúxuslíf fyrir lítið kríli.  Þegar kom að því að halda heim á leið fékk hann góðan mjólkuskammt og svaf alla leiðina heim líka.  Ég gat svo tekið hann úr stólnum og sett í rúmið án þess að hann vaknaði og hann svaf samtals í um 6 tíma :)  Nýtt met fyrir litla karl !

Saturday, June 25, 2011

Sætamúsin

 Gaman á leikteppi :)
 Í flottu prjónapeysunni og húfunni frá mömmu hennar Magneu :)
 Nýkominn úr baði, við það bil að fara að kvarta :)
 Sybbinn og sætur í náttgalla
Orðinn alveg snar yfir þessum myndatökum !