Lilypie Third Birthday tickers

Saturday, January 19, 2013

Litli íþróttaskólinn :)

Ég skráði Stefán Sölva í litla íþróttaskólann svo hann fengi tækifæri til þess að eyða einhverju af þessari endalausu orku sem hann hefur :)  Við mættum galvösk rétt fyrir tíu um morgun upp í Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra á Háaleitisbraut.  Þegar við mættum voru ekki margir komnir og Stefán brunaði inn í salinn og fór að leika sér með bolta og hlaupa um.  Þegar fleiri fóru að mæta með börnin sín fór hann að verða pínu smeykur og sat loks í fanginu á mér.  Síðan komu kennararnir og kölluðu á krakkana og létu þau fá litlar dýnur til að setjast á.  Stefán tók við sinni dýnu og settist en var ekki alveg rólegur.  Þegar kennararnir byrjuðu svo á að láta alla syngja "Stóra brúin fer upp og niður" brotnaði minn maður alveg niður og hágrét í fanginu á mér.  Hann neitaði svo algerlega að taka þátt í neinu s.s. að hlaupa og skríða yfir salinn og syngja meira.  Þegar komið var að því að fara yfir í hinn salinn þar sem er þrautabraut til að leika í og við áttum að leika að við værum lest fór hann allt í einu að brosa og allt var í lagi !  Hann skemmti sér konunglega í þrautabrautinni, skríkti og hló og var ekki í vandræðum með að gera þrautirnar.  Það var svo gaman að þegar komið var að því að syngja kveðjulag ætlaði ég ekki að ná honum úr uppáhaldsstaðnum í þrautabrautinni.  Hann fékkst þó til að koma og tók þátt í að gera hreyfingarnar í laginu.   Um leið og því lauk fór hann strax í þrautabrautina aftur og ég varð að taka hann og bera hann fram :)  Þrátt fyrir erfiðan fyrrihluta var samt afar gaman í íþróttaskólanum :)

Saturday, January 5, 2013

Fjölskylduveisla 5. janúar

Steinka systir tók sig til og bauð öllum Rebbunum til sín í fjölskylduboð.  Allir komu með eitthvað á hlaðborð og svignuðu borðin af góðgæti.  Það var stór og fríður hópur sem mætti á staðinn og nokkrir krakkar sem Stefáni fannst gaman að ærslast með :) Mest spennandi þótti krökkunum að fá að fara inn í stóra jeppann hans Gumma sem var inni í bílskúr.  Stefán fékk að fara inn í hann og var svo hrifinn að hann ætlaði ekki að vilja fara út aftur.  Fékk að fara 2x í bílinn en þegar Gummi ákvað að loka á fleiri bílaheimsóknir brotnaði hann alveg niður.  Var fljótur að jafna sig við að æða um allt og leita að kisum :)  Afar skemmtileg veisla og gaman að hitta alla ættingjana :)

Tuesday, January 1, 2013

Jól og áramót 2012

Jólin voru dásamleg þó að söknuðurinn eftir ömmu hafi gert vart við sig.  Við eyddum aðfangadagskvöldi hjá Möggu og Sigga og snæddum æðislegan hamborgarhrygg og vanilluís eins og mamma gerði í eftirrétt. Elsku litli karlinn var hinsvegar með 39 stiga hita og hafði ekki lyst á matnum, var hinsvegar til í að fá sér ís þrátt fyrir veikindin.  Þegar kom að pökkunum var hann alveg til í að skoða dótið en varð lang spenntastur yfir Legolest sem hann fékk frá Sigga :)  Hann fékk margar góðar gjafir, Lego, trékubba, uppblásna flugvél, bækur og margt fleira.  Við fórum svo heim sæl og ánægð og litli veiki prinsinn sofnaði vært.  Á jóladag fórum við í brunch til Steinku og Gumma.  Stefán borðaði vel þar og skemmti sér vel við að spjalla við Freyju.  Um kvöldið borðuðum við hjá Svanhildi og Ragnari.  Við komum með hangikjöt en þau buðu upp á kalkúnabringur.  Stefán var nú spenntastur fyrir því að leika sér við frændur sína en fékk sér samt smá hressingu.  Á annan í jólum var hið árlega jólaboð hjá Möggu þar sem öll fjölskyldan kom saman.  Þar var mikið um dýrðir, fullt af krökkum til að leika við og mikið af kökum og góðgæti til að borða.  Stefán var því afar ánægður með lífið.  Þegar allir fóru svo í miðaleik og fóru að hlæja hátt og mikið brotnaði litli maðurinn hinsvegar niður og vissi ekki alveg hvernig hann átti að bregðast við.  Kúrði skælandi hjá mömmu.  Þann 29. des var svo kalkúnaboð hjá Steinku og Gumma.  Þar var stærstur hluti fjölskyldunnar samankomin.  Stefán vildi ekki sjá kalkúninn og borðaði bara pínulítið af mat.  Þegar farið var að bera ís og aðrar kræsingar á eftirréttahlaðborðið varð hann hinsvegar kátur :)  Borðaði vel af namminamminamm :)  Svo kom að áramótunum.  Við eyddum þeim hjá Helen og Atla og Örnu litlu.  Við borðuðum hamborgarhrygg en líka dádýr :)  Stefán smakkaði aðeins af matnum en var að venju ekkert spenntur.  Hann sofnaði svo um 9 en vaknaði aftur á slaginu 22:30 um leið og áramótaskaupið byrjaði !!  Þegar því lauk fórum við út að horfa á flugeldana.  Honum fannst ljósin ansi flott en var ekki hrifinn af hávaðanum.  Hann var samt ekki hræddur.  Við vorum svo komin heim rúmlega hálf tvö en ungi maðurinn reyndi samt að halda sér vakandi í um kortér.  Hann sofnaði loks örþréyttur í fyrsta sinn á nýju ári sem vonandi verður gæfuár fyrir okkur öll :)

Sunday, December 30, 2012

Ný tönn !

Jæja, þá er komin augntönn í viðbót :)  Hún er vinstra megin í efra gómi :)

Tuesday, December 25, 2012

Ný tönn :)

Augntönn hægra megin í neðri gómi fannst þann 15. desember :)

Monday, December 17, 2012

Helsinki 14.-17. desember

Alltaf bætir litli drengurinn í lífsreynslubókina :)  Við fórum ásamt Hildu stóru systur, Svanhildi systur og Guðlaugu dóttur hennar til Helsinki þann 14. - 17. desember.  Ferðin út gekk ágætlega, aðeins þurfti að slást við unga manninn í vélinni en hann náði þó að sofa helminginn af fluginu.  Þegar til Helsinki kom tókum við rútu niður á lestarstöð og sporvagn þaðan heim á hótelið.  Þá hefur herrann prófað sporvagn í fyrsta sinn!  Við fórum svo og röltum um í miðbænum, unginn litli var í kerrunni sinni, vel dúðaður enda snjór og kuldi úti.  Honum leist vel á jólaljósin og þreyttist ekki á að benda okkur á þau :)  Næsta dag fórum við um og skoðuðum, skruppum í Ittala outlet í úthverfi og snuðruðum um miðbæinn :)  Kvöldmatinn snæddum við heima á hóteli og ungi maðurinn æddi um allan veitingastaðinn og var ekkert á því að sitja kyrr :)  Hann elskaði líka að hlaupa um allan hótelganginn :)  Á veggjunum voru á 2 stöðum stór hringur, lítill eins og hálfhringur við hliðina á og svo mynd af lítilli mús.  Stefán benti á hringinn og sagði bolti, kallaði músina muss og hálfhringinn namm namm !  Við vitum ekki alveg hvað hann hafði í huga þar :)  Á sunnudaginn var veðrið frekar leiðinlegt. Við fórum og löbbuðum eftir Esplanaden breiðgötunni niður að höfninni og skoðuðum jólamarkað fyrir framan dómkirkjuna.  Það rok og snjókoma svo við flúðum fljótlega inn í búð.  Við sáum svo að litli maðurinn var ekki alveg eins og hann átti að sér.  Ég fór því með hann heim á hótel.  Hilda kom svo með hitamæli og þá komumst við að því að hann var kominn með yfir 39 stiga hita :(  Hann var afar slappur og kúrði bara í fanginu á mér :(  Daginn eftir var svo haldið heim á leið.  Við borðuðum morgunverð á hótelinu og drifum okkur svo út á flugvöll.  Við urðum að bíða dágóða stund eftir því að geta tékkað inn og Stefán notaði tækifærið og rölti aðeins um.  Hann spjallaði við hund sem beið í annarri röð og var alveg brjálaður þegar hundurinn var lokaður inn í búri til að setja inn í vélina :)  Reyndi að opna búrið aftur !  Svo fór hann og kíkti á litla stelpu sem lá grenjandi í gólfinu, reyndi að spjalla aðeins við hana :D  Flugið heim gekk vel enda karlgreyið lasinn og svaf því eins og steinn meirihluta leiðarinnar.  Hann var samt spenntur fyrir að kíkja út um gluggann þegar kom að lendingu og fylgdist spenntur með Íslandi birtast aftur :)  Því miður get ég ekki birt myndir þar sem ég er búin með myndakvótann á þessari síðu, er að vinna í að leysa það mál !  En víðförull er drengurinn, búinn að heimsækja 3 lönd í ár :)

Friday, December 7, 2012

Fyrsta glóðaraugað

Enn er nóg sem Stefán Sölvi gerir í fyrsta sinn.  Nú bætti hann einu á listann yfir upplifanir sem ég hefði gjarna vilja sleppa.  Hann nældi sér í fyrsta glóðaraugað að kvöldi annars desember !  Elsku snúðurinn var að hlaupa á fullri ferð við borðið, datt í æsingnum og skall utan í borðbrúnina.  Fyrst myndaðst stór fjólublá kúla við augnkrókinn en strax næsta morgun var hún hjöðnuð og liturinn búinn að dreifast yfir á augnlokið og undir augað.  Litirnir eru farnir að dofna en enn má sjá ummerkin á litla karli í dag.