Lilypie Third Birthday tickers

Saturday, November 17, 2012

Stefán að rústa eldhúsinu og taka til eftir sig :



Eins og hálfs árs !

Já tíminn flýgur !!  Pínulitli karlinn minn varð eins og hálfs árs í dag!  Með hverjum deginum sem líður verður hann duglegri og duglegri og smá saman bætist líka í orðaforðann :)  Nýjasta nýtt er að segja ýta, ýta og vilja fá að ýta á alla ljósarofa og lyftutakka :)  Annað uppáhald er orðið ljós - dlós, dlós segir hann og bendir glaður á næsta ljós.  Heitt er orð sem er borið fram á skemmtilegan hátt, eiginlega bara hvísla tetttet tettet og svo er voða spennandi að reyna að snerta þetta heita með einum fingri.  Hann er líka búinn að læra að maður á að blása á eitthvað heitt og gerir það óspart við kerti þó að honum hafi ekki tekist enn að slökkva :)  Svo eru það skór sem eru mikið áhugamál núna.  Hilda á svarta flatbotna skó með gylltum göddum og Stefáni finnst þeir ekkert smá flottir.  Sagði vá, vá þegar hann tók þá úr skógrindinni í fyrsta skipti :)  Hann hefur prófað þá nokkrum sinnum og finnst þeir greinilega afar smekklegir :)  Hann sækir skóna sína sjálfur á hverjum morguni þegar við erum að búa okkur á stað og setur alltaf annan skóinn á borðið alveg eins og ég var vön að gera til að geyma hann meðan ég klæddi hann í hinn :)  Hann segir svo dóó, dóó þegar hann sækir þá :)  Við erum búin að fá okkur litla skógrind og honum þykir ekkert leiðinlegt að hreinsa úr henni og setjast svo á hana, afar stoltur af sjálfum sér.  Síðustu daga fattaði hann svo allt í einu hversu sniðugt það er að nota stóla til að komast upp á borð.  Nú eru stólarnir dregnir fram og hann þýtur upp á borð og nær í það sem hugurinn girnist.  Í gær fór hann upp á eldhúsborð ítrekað til að sækja sér mandarínur í ávaxtakörfuna og varð ég að lokum að færa körfuna upp á eldavél þegar hann var búinn að borða 8 stk. !  Hann kom reyndar labbandi með avocado líka, bar það upp að eyranu og sagði hæ hæ :)  Hann er reyndar búinn að nota ýmsa hluti sem síma, s.s. hleðslutækið fyrir tölvuna, mandarínu, stóra töng og margt fleira :)  Í dag tók hann sig til og náði í fóðurstauk skjalbökunnar, náði að opna hann og bisaði svo við að troða lúku af fóðri ofan í búrið.  Skjaldbakan var afar ánægð en mamman var frekar hissa að hann skyldi fatta að gera þetta :)  Litli kútur hefur alltaf verið mikill kúrikarl en undanfarið erum við að fá enn fleiri faðmlög og knús.  Ekki slæmt :)  Segir gjarnan aaaaa og strýkur yfir andlitið og hárið á okkur Hildu.  Hann er auðvitað frábærasta og skemmtilegasta barn í heimi, það þarf vart að taka það fram :)  Hér eru nokkrar myndir af gullmolanum :)
 Kassar eru skemmtileg leikföng
 Á ég að loka mig inni ?
 Hahahaha gaman gaman !
 Spennandi þessi poki sem mamma er með þarna
 Kominn með skóna sína :)
 Mr. Megacool
 Dýrkar Atla frænda :)
 Að ná í skóna enn einu sinni
 Dóó, dóó !
 Máta ruslakörfu :)
 Kúrimús
 Stóru frændurnir komu í pössun og Stefáni þótti það nú ekki leiðinlegt
 Stuð að borða sjálfur :)
 Njomm njomm :)
 Híhíhí
 Eva frænka kennir lillanum á ukulele
 Og svo prófaði hann að borða burstann hennar :)
 Horft á stubbana hjá Hildu
 Alvarlegt mál
 Knúsar stóru systur :)
Gaman að fylgjast með Hildu í tölvunni :)

Tuesday, October 23, 2012

Kátur kútur

Stefán er afar hress ungur maður.  Ef annað hvort ég eða Hilda setjumst niður kemur hann strax brunandi, bakkar og sest í fangið á okkur.  Sama gerist ef við förum niður á hækjur okkar, kemur strax og bakkar upp að okkur :)  Honum þykir ekki leiðinlegt hossa sér ofan á mömmu eða systu, ef við leggjumst niður kemur hann fljótt og klifrar upp á okkur til að byrja fjörið :)  Hann er alltaf að finna upp á nýjum uppátækjum, um daginn tók hann skónna hennar systur sinnar og vappaði með þá út um allt.  Uppáhaldsbókin hans er ennþá Barbapabbabók sem hann tryllist af gleði ef ég dreg fram.  Hann er byrjaður að fá að borða sjálfur, mamman hefur ekki verið nógu dugleg með að leyfa honum það.  Eini gallinn er að þá treður hann ansi miklu upp í sig í einu :)  En þetta lærist smá saman.  Litli unginn er oft svo ljúfur og góður, gerir aaaaaa við okkur og kúrir sig upp að manni.  Hann er afar spenntur fyrir Ipad og er búinn að fatta hvernig maður skiptir um myndbönd á youtube :)  Eini gallinn er að hann heldur að fartölvan mín sé líka með snertiskjá og hamrar á henni !  Hann er farinn að muna hvar pizzasnúðarnir eru geymdir í Bónus og Krónunni og þegar við komum þar inn byrjar hann strax að segja namm namm og benda þangað :)  Hann heimtar svo að fá að borða einn snúð meðan við verslum :D  Hann er auðvitað afar skemmtilegur þessi elska og brjálæðislega orkumikill :)    Hér eru nokkrar myndir:
 Sæti búinn að bakka upp að mér og setjast :)
 Mamma taktu mig
 Glaður að leika hjá Steinku
 Sprellað með systur sinni
 Naut þess í botn
 Híhí
Setur hjá systu :)
 Kominn í skóna hennar Hildu
 Ekkert smá ánægður
 Bara á röltinu :)
Kúrudrengur :)

Wednesday, October 10, 2012

Fyrsta skipti í pössun yfir nótt - og það í 4 nætur !

Litli kúturinn fór í fyrsta skipti í langa pössun núna 4. október.  Ég fór til Prag 4.- 8. október og á meðan gisti Stefán Sölvi hjá Möggu frænku.  Þetta gekk alveg einstaklega vel.  Hann var svo góður við frænku sína, var fljótur að sofna og þótt hann rumskaði á næturnar sofnaði hann fljótt aftur.  Að vísu hélt hann frænku við efnið með því að hoppa og hlaupa um í sófanum :)  Hann varð samt afar glaður að sjá mömmu aftur á mánudagskvöldinu og faðmaði mig og knúsaði.  Þegar ég ætlaði aðeins að leggja hann frá mér til að borða neitaði hann strax, vildi ekki sleppa mömmu !  En þetta gekk vel, bæði fyrir mömmuna og barnið, var samt æðislegt að fá elskuna sína aftur í hendur :)

Saturday, September 22, 2012

Afmælisveisla hjá Helga Steinari frænda

Við skelltum okkur í afmæli hjá Helga Steinari litla frænda í dag :)  Hann verður 1 árs þann 1. október en veislan var haldin í dag heima hjá ömmu í Mávahlíðinni.  Ungi maðurinn sýndi gestum hvað hann er orðinn duglegur, vantar bara herslumuninn þá fer hann að labba út um allt :)  Stefáni fannst afar spennandi að aðstoða hann við að opna stóran afmælispakka og varð enn æstari þegar hann áttaði sig á því að þetta var sparkbíll :)  Reyndi að setjast á hann áður en búið var að ná honum úr umbúðunum :)  Hann fékk að prófa hann og var líka að ýta bílnum með Helga Steinari í :)  Veitingarnar voru ekki af verri endanum og við hámuðum í okkur góðgætið.  Stefáni finnst ekkert leiðinlegt í svona partíum :)  Hér eru nokkrar myndir frá deginum.
Hér er Hr. Hjálpsamur að aðstoða litla frænda
 Úa frænka mætt á staðinn :)
 Sætasti afmælisdrengurinn
 Angry birds kaka !
 Stefán prófar bílinn hans Helga Steinars
 Hjá Möggu, virðulegur á svip
Krílin borðuðu í eldhúsinu :)

Sunday, September 16, 2012

Nýjasta nýtt

Jæja, nóg er búið að vera að gerast hjá okkur undanfarið en lítið skrifað !  Stefán Sölvi er búinn að mæta í þó nokkrar afmælisveislur.  Við fórum í afmæli hjá Örnu Ösp 18. ágúst en það afmæli var haldið utandyra í garði, Stefáni til mikillar gleði :)  Hann æddi um allan garðinn og reyndi m.a. að komast inn í búrið til kanínunar sem býr þarna.  Þann 19. ágúst fórum við svo upp í sumarbústað til Svanhildar og fjölskyldu og héldum þar upp á afmælið hans Óla, 8. september fórum við svo í afmæli til Hrafndísar Jónu, 11. september í afmæli til Dodda og 16. september í afmæli Eyrúnar hennar Sifjar :) Það er stanslaust fjör hjá okkur, það verður að segjast :)  Stefán Sölvi hefur nú verið í svefnþjálfun í þrjár vikur.  Hann sofnar ekki lengur við brjóstið heldur er lagður í rúmið sitt og sofnar þar.  Þetta hefur nú ekki gengið alveg smurt fyrir sig en er smá saman að koma, núna tekur þetta venjulega 15-20 mínútur.  Hann reynir ýmislegt til að halda sér vaknandi, hlær og ruggar sér fram og til baka og leikur sér á fullu með bangsana sína :)  Hann blaðrar alveg stanslaust en mest er þetta nú óskiljanlegt :)  Hann segir þó slatta af orðum, hér er listinn meira eða minna: mamma, amma, takk, já, nei, vá, hæ, bæ, hoppa, labbilabbi, bobba (brjóst), barbapapa, datt, datt-etta?, Hilda og namminammi :).  Hann er alltaf að verða duglegari að klifra upp á hluti, ýta á takka og uppgötva heiminn.  Hann er farinn að njóta þess að horfa á Skoppu og Skrítlu, Söngvaborg og Brúðubílinn.  Nýjasta uppáhaldið er Barbapabbi, hann fer að brosa um leið og ég teygi mig eftir bókinni til að lesa fyrir hann :)  Hann heldur áfram að vera kátur og glaður þessi elska.  Hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum:
 Gleðipinninn að chilla í stólnum sínum
 Að rústa baðherberginu :)
 Að láta Hildu systur lesa fyrir sig
 Kann að koma sér vel fyrir
 Kátur í baði :)
 Krúttíbúttí
 Hvaða svipur er þetta ?
 Töff hár
 Að reyna að sleppa upp úr baðinu
Fær innblástur úr bókinni um Láka jarðálf :)

Sunday, September 2, 2012

Fjórir jaxlar komnir :)

Eftir nokkuð hlé í tanntöku tók Stefán Sölvi stökk og bætti við fjórum jöxlum !  Fyrst komu tveir í efri góm sem fundust 23. ágúst og síðan komu tveir í neðri góm 2. september.  Hann er því kominn með 12 tennur :)  Nú vantar bara tennurnar milli jaxlanna og framtannanna sem komnar eru :)