Lilypie Third Birthday tickers

Saturday, May 19, 2012

Göngutúr með Freyju :)

Við Hilda, Stefán og Arna Rún fórum í göngutúr með Freyju í Kópavoginum.  Freyju fannst ekkert leiðinlegt að hafa fullt af fólki með sér í göngutúrnum:)  Við stoppuðum á leikvelli og allir fengu tækifæri til að leika sér.  Stefáni fannst gaman að prófa tækin og Arna gróf fína holu og bjó til lítið fjall við hliðina á :)  Við röltum svo í rólegheitunum heim á leið en Örnu fannst labbið vera orðið ansi mikið og þurfti aðeins að hvíla sig á leiðinni.  Freyja var ekkert þreytt og Stefán kvartaði í kerrunni ef við hægðum á okkur :)  Hér eru myndir frá túrnum:
 Hópurinn fríði :)
 Hress karl í kerrunni :)
 Við Stefán skemmtum okkur vel á hestinum
 Litla fannst þetta ekki leiðinlegt
 Arna í holugreftri
 Og auðvitað róluðum við líka :)
 Fjör í klifrugrind
 Gaman gaman :)
 Arna var orðin ansi svört á höndunum :)
 Hilda prófaði líka hestinn
Arna að hvíla lúin bein á heimleiðinni

Thursday, May 17, 2012

Afmælissöngurinn sunginn fyrir lítinn kleinukarl :)





Stefán Sölvi eins árs !

Ótrúlegt en satt - það er liðið eitt ár síðan brosmildasti og kátasti prins í heimi fæddist!  Þetta ár hefur verið hreinlega yndislegt :)  Afmælisprinsinn vaknaði kl. hálf átta og við fórum um áttaleytið inn í herbergi til systur hans sem knúsaði hann til hamingju :)  Svo fórum við Stefán fram í stofu og hann opnaði pakka frá Hildi, Sonju og Sören og svo stóra pakkann frá mömmu sinni :)  Hann var afar ánægður með bílana sem komu úr pökkunum frá Danmörku og líkaði vel við litla hægindastólinn sem mamma gaf honum :)  Hann fékk líka múmínkeiluspil og púsl frá mömmu :)   Morgninum var eytt í að baka og undirbúa veislurnar, en það dugði ekki minna en tvær veislur til að fagna þessum stórviðburði :)  Fyrsta veislan var fyrir fjölskylduna og var haldin heima hjá Möggu systur kl. 2.  Stefán Sölvi var kátur að sjá alla krakkana sem mættir voru í afmælið og þegar stór bolti kom upp úr einum pakkanum var hann afar ánægður.  Svo var sunginn afmælissöngurinn fyrir drenginn og þá varð hann alveg eins og kleina, fór þvílíkt hjá sér !  Hilda systir hjálpaði honum að blása á afmæliskertið.  Hann naut sín í botn í veislunni og fékk að gæða sér á kökum og ís hjá Möggu frænku.  Hann var líka afar duglegur að sýna hversu fær hann er orðin í að labba.  Kl. 5 var svo veisla fyrir vinkonur mömmu heima í Skipholtinu.  Aftur kom fullt af krökkum og Stefán naut þess að brölta um með þeim og leika.  Aftur var sunginn afmælissöngurinn og aftur fór drengurinn hjá sér :)  Enn fleiri gjafir streymdu í hús og eru nú allar hillur fullar af flottu dóti :)  Þegar klukkan nálgaðist átta var afmælisbarnið orðið ansi þreytt og sofnaði á svipstundu þegar búið var að búa hann fyrir rúmið.  Góður dagur :)
 Byrjað var á því að smakka á pökkunum
 Hmmm þetta er spennó
 Reynt að opna
 Hæstánægður með löggubílinn sinn
 Opnar pakkann frá mömmu
 Reiður þegar hann náði ekki púslinu úr plastinu :)
 Búinn að prófa að toga út stólinn
 Stoltur og flottur sitjandi í stólnum
 Hér stendur Stefán 1 :)
 Opnar pakka með aðstoð frá krökkunum :)
 Stendur flottur með kubbafötuna sína
 Hvað viltu með þessa myndavél mammma ?
 Mæðgin í vinkonuveislunni
 Snúlli orðinn pínu þreyttur
 Hér voru við að opna pakka
Prinsinn ánægður með allar gjafirnar :)

Wednesday, May 9, 2012

Fyrsta skipti að gefa öndunum brauð

Við Stefán skelltum okkur út að Bakkatjörn með poka fullan af brauði í dag.  Lillinn varð frekar hissa þegar ég tók hann úr bílstólnum og settist með hann í farþegasætið fram í og sat með hann í opnum dyrunum og fór að kasta brauði.  Þegar í stað dreif að fullt af öndum og stöku mávur til að gæða sér á brauðinu.  Stefáni fannst þetta alveg frábært, hló og hló enda mikil læti og hamagangur í öndunum.  Skyndilega færðu þær sig burtu eins og þær væru hræddar við eitthvað.  Mér til undrunar kom risastór svanur í ljós, hafði ekki séð hann fyrir opinni bílhurðinni.  Hann var ekki feiminn og kom alveg að okkur að sníkja brauð!  Mér stóð nú ekki alveg sama en svanurinn hagaði sér skikkanlega svo hann fékk nóg af brauði frá okkur.  Við munum endurtaka þetta við fyrsta tækifæri :)  Hér er mynd af svaninum vini okkar:

Thursday, May 3, 2012

Fyrstu skrefin af eigin frumkvæði!

Stefán Sölvi gerði sér lítið fyrir og tók sín fyrstu skref af eigin frumkvæði í dag. Hann fór með mér í sjúkraþjálfun  og gekk tvö skref frá sjúkraþjálfunarbekknum til sjúkraþjálfarans sem sat við skrifborðið sitt :)  Litli duglegi maður !  Eftir þjálfunina fórum við til mömmu og þar bætti hann um betur og tók þrjú skref til ömmu sinnar og seinna fimm skref :)  Þetta er allt að koma hjá litla snillingnum  :)

Wednesday, May 2, 2012

Litli göngumaðurinn minn :)


Gönguæfingar :)

Um helgina byrjaði Hilda að þjálfa bróður sinn í að ganga.  Við tókum eftir því að hann var farinn að geta staðið óstuddur í nokkurn tíma svo hún prófaði að stilla honum upp og fá hann svo til að labba til sín. Og viti menn!  Fyrst sýndi hann hvað hann væri duglegur að standa óstuddur sífellt lengur og lengur, síðan fór hann að taka skref til systur sinnar. Stundum var hann alveg eins og vélmenni en stundum afar flott skref.  Fyrst 2-4 en núna áðan tók hann örugglega 10-15 skref til hennar !  Enn vantar upp á jafnvægið en þetta er allt að koma!!