Tuesday, August 9, 2011
Monday, August 8, 2011
Huggulegheit í sólinni í miðbænum
Í dag skrapp ég með börnin bæði niður í miðbæ að njóta sólarinnar og góða veðursins. Við röltum við hjá Möggu systur í vinnunni en Stefán steinsvaf bara í þeirri heimsókn. Við fórum svo niður að Tjörn og er því hægt að segja að Stefán hafi nú farið þangað að skoða endurnar í fyrsta sinn :) Reyndar voru nær eingöngu mávar þar.. Við röltum svo í rólegheitum um á milli búða og settumst svo á útiborð hjá Thorvaldsen og pöntuðum okkur mat. Ég var alveg að grillast, sólin var svo heit og alveg logn úti. Austurvöllur var þakinn fólki í sólbaði og fullt á veitingastöðunum allt í kring. Hilda þoldi sólina vel enda mikill sóldýrkandi. Við þurftum að bíða lengi eftir matnum enda mikið að gera, Stefán vaknaði meðan beðið var og heimtaði að fá líka mat. Hann sætti sig ekki við neina bið og fékk strax að borða. Hann hefur því verið úti að borða á Thorvaldsen :) Það var orðið svo heitt þarna úti að ég sendi Hildu inn með drengsa meðan ég kláraði matinn. Hilda tók lit við að sitja þarna, kom strax far eftir kjólinn hennar. Móðir hennar var samt enn jafn næpuhvít... Við röltum svo eftir matinn yfir á Ingólfstorg og keyptum okkur ís. Góður dagur í sumarblíðu :)
Stefán sefur sætt við Austurvöll
Hilda nýtur sólarinnar á Thorvaldsen
Stefán sefur sætt við Austurvöll
Hilda nýtur sólarinnar á Thorvaldsen
Sunday, August 7, 2011
Heimsókn til Guðnýjar :)
Í dag skruppum við Kristín Anna í Ikea með ungana okkar (eins og svo oft áður..). Við ákváðum svo að hringja í Guðnýju vinkonu og athuga hvort við fengjum ekki að kíkja í heimsókn til þeirra mæðgna í vesturbænum. Jú það var nú lítið mál og við brunuðum þangað þegar Guðný var búin í sólbaði :) Doddi og Hrafndís Jóna léku sér saman en Stefán fékk að njóta sín í dekri hjá bæði Guðnýju og Kristínu. Ungi maðurinn lék á als oddi og var glaðvakandi og hress alla heimsóknina. Hrafndísi fannst reyndar eitthvað vafasamt að mamma væri að halda á þessum strák og vildi gjarnan fá hana til að gera eitthvað með sér. Doddi kom og sýndi honum dót og Stefán mændi heillaður á hann :) Afar huggulegur eftirmiðdagur hjá okkur öllum og við hlökkum til næstu heimsóknar :)
Guðný mátar prinsinn :)
Hrafndísi fannst það nú frekar vafasamt og reyndi að draga hana með sér í burt :)
Kristín og Stefán í góðum gír
Horfir athugull á mömmu
Doddi kom með dúkku til að sýna Stefáni
Stefáni fannst Doddi afskaplega skemmtilegur :)
Guðný mátar prinsinn :)
Hrafndísi fannst það nú frekar vafasamt og reyndi að draga hana með sér í burt :)
Kristín og Stefán í góðum gír
Horfir athugull á mömmu
Doddi kom með dúkku til að sýna Stefáni
Stefáni fannst Doddi afskaplega skemmtilegur :)
Saturday, August 6, 2011
Fyrsta Gleðigangan (Gay Pride) hans Stefáns :)
Já, Stefán Sölvi var að gera eitthvað í fyrsta sinn.. kemur á óvart ! Við skelltum okkur í dag í Gleðigönguna með Dodda og Kristínu Önnu ásamt um 100.000 öðrum ! Veðrið var dásamlegt sem spillti svo sannarlega ekki fyrir. Við Stefán vorum ekki alveg upp við gönguna þar sem tónlistin var of hávær fyrir lítil eyru. Stefán var reyndar hinn rólegasti yfir þessu öllu og einbeitti sér bara að því að borða hendurnar á sér. Þegar við vorum búin að fylgja göngunni að enda Hljómskálagarðsins heimtaði ungi maðurinn að fá að drekka og ég settist með hann á bekk í garðinum til að gefa honum. Þá kom í ljós að hann var búinn að gera rækilega í bleiuna og mamma var ekki með blautþurrkur... Þannig endaði fyrsta Gleðigangan, við brunuðum heim á leið en vorum samt ánægð með að hafa verið með :)
Hér er Stefán pollrólegur við Gleðigönguna :)
Hér er Stefán pollrólegur við Gleðigönguna :)
Wednesday, August 3, 2011
Skemmtileg heimsókn :)
Við Stefán Sölvi erum svo heppin að fá margar heimsóknir. Í dag komu Guðný og Kristín Anna í heimsókn með krakkana sína, þau Hrafndísi Jónu og Dodda :) Eldri börnin voru dugleg að leika sér saman og fengu meðal annars að prufa leikteppið hans Stefáns :) Stefáni fannst þau mjög spennandi og fylgdist grannt með ferðum þeirra. Langaði örugglega að geta slegist í hópinn :) Krakkarnir komu svo og settust hjá honum í ömmustólnum og voru góð við hann :) Þeim fannst það báðum hinsvegar frekar ógnandi þegar mömmur þeirra tóku Stefán í fangið :) Við gæddum okkur á smá bakkelsi og osti og spjölluðum meðan krakkarnir léku sér. Alltaf gaman að fá smá félagsskap :)
Doddi og Hrafndís Jóna að vera góð við Stefán
Hrafndís vildi að mamma sín væri góð við hann líka :)
Doddi með slönguna sem loðkraga
Fer honum bara vel :)
Guðný fékk að máta Stefán :)
Doddi að hnoðast á mömmu sinni
Doddi og Hrafndís Jóna að vera góð við Stefán
Hrafndís vildi að mamma sín væri góð við hann líka :)
Doddi með slönguna sem loðkraga
Fer honum bara vel :)
Guðný fékk að máta Stefán :)
Doddi að hnoðast á mömmu sinni
Monday, August 1, 2011
Gunna og Sigga Sóley í heimsókn :)
Gunna vinkona og Sigríður Sóley dóttir hennar komu í heimsókn í gær. Sigga Sóley var hress og kát og var spennt fyrir að skoða allt hér, sérstaklega fjarstýringar, síma og svoleiðis :D Henni fannst Stefán forvitnilegur og var alveg til í að klappa honum og taka í hann en það þurfti aðeins að fylgjast með þar sem stundum var handtakið ansi fast :) Gunna prófaði að halda á litla manninum og það þótti Siggu Sóley dálítið vafasamt þar sem þetta er jú mamma hennar :) Hér er mynd af henni með sætu krílin:
Heimsóknir og afmælisveisla :)
Litli karlinn heldur áfram að þvælast um með mömmu sinni :) Á laugardaginn stoppuðum við hjá Helen systur eftir Ikea ferð. Honum leist vel á Atla frænda sinn, mændi á hann alveg heillaður :) Honum fannst Arna Rún frænka líka spennandi og henni fannst gaman að kíkja aðeins á hann :) Á sunnudaginn heimsóttum við svo Steinku systur. Þar hittum við Úlfhildi frænku hans sem er fædd í desember 2010. Henni fannst Stefán ansi spennandi og langaði mikið að fá að djöflast í honum. Hún varð frekar afbrýðisöm þegar mamma hennar tók Stefán í fangið :) Í dag á Steinar Sverrir 6 ára afmæli og við skelltum okkur þangað í afmæliskaffi. Stefán gekk á milli manna og var afar ánægður með dekrið. Hann steinsofnaði í fanginu á Ragnari og kúrði hjá honum í sófanum í nokkurn tíma :) Hann hafði nú ekki áhuga á kökunum í þetta sinn, en fékk hressingu hjá mömmu inni í svefnherbergi. Hér eru nokkrar myndir frá þessum ævintýrum:
Arna frænka fékk að prófa að halda á Stefáni
Stefán horfir heillaður á Atla frænda
Var alveg til í að spjalla á fullu við frænda sinn
Arna að vera góð við frænda sinn
Stefán spjallar við Helen frænku heima hjá Steinku
Stefán fékk að leggja sig inni í herbergi en vaknaði fljótlega
Ekkert smá sætur nývaknaður :)
Stefán nýtur aðdáunar fjölskyldunnar í afmæli Steinars
Afmælisbarnið hæstánægður að gæða sér á köku
Svanhildur frænka var eins og venjulega til í að labba um með prinsinn
Arna frænka fékk að prófa að halda á Stefáni
Stefán horfir heillaður á Atla frænda
Var alveg til í að spjalla á fullu við frænda sinn
Arna að vera góð við frænda sinn
Stefán spjallar við Helen frænku heima hjá Steinku
Stefán fékk að leggja sig inni í herbergi en vaknaði fljótlega
Ekkert smá sætur nývaknaður :)
Stefán nýtur aðdáunar fjölskyldunnar í afmæli Steinars
Afmælisbarnið hæstánægður að gæða sér á köku
Svanhildur frænka var eins og venjulega til í að labba um með prinsinn
Subscribe to:
Posts (Atom)
