Við Stefán skelltum okkur út að Bakkatjörn með poka fullan af brauði í dag. Lillinn varð frekar hissa þegar ég tók hann úr bílstólnum og settist með hann í farþegasætið fram í og sat með hann í opnum dyrunum og fór að kasta brauði. Þegar í stað dreif að fullt af öndum og stöku mávur til að gæða sér á brauðinu. Stefáni fannst þetta alveg frábært, hló og hló enda mikil læti og hamagangur í öndunum. Skyndilega færðu þær sig burtu eins og þær væru hræddar við eitthvað. Mér til undrunar kom risastór svanur í ljós, hafði ekki séð hann fyrir opinni bílhurðinni. Hann var ekki feiminn og kom alveg að okkur að sníkja brauð! Mér stóð nú ekki alveg sama en svanurinn hagaði sér skikkanlega svo hann fékk nóg af brauði frá okkur. Við munum endurtaka þetta við fyrsta tækifæri :) Hér er mynd af svaninum vini okkar:
Wednesday, May 9, 2012
Thursday, May 3, 2012
Fyrstu skrefin af eigin frumkvæði!
Stefán Sölvi gerði sér lítið fyrir og tók sín fyrstu skref af eigin frumkvæði í dag. Hann fór með mér í sjúkraþjálfun og gekk tvö skref frá sjúkraþjálfunarbekknum til sjúkraþjálfarans sem sat við skrifborðið sitt :) Litli duglegi maður ! Eftir þjálfunina fórum við til mömmu og þar bætti hann um betur og tók þrjú skref til ömmu sinnar og seinna fimm skref :) Þetta er allt að koma hjá litla snillingnum :)
Wednesday, May 2, 2012
Gönguæfingar :)
Um helgina byrjaði Hilda að þjálfa bróður sinn í að ganga. Við tókum eftir því að hann var farinn að geta staðið óstuddur í nokkurn tíma svo hún prófaði að stilla honum upp og fá hann svo til að labba til sín. Og viti menn! Fyrst sýndi hann hvað hann væri duglegur að standa óstuddur sífellt lengur og lengur, síðan fór hann að taka skref til systur sinnar. Stundum var hann alveg eins og vélmenni en stundum afar flott skref. Fyrst 2-4 en núna áðan tók hann örugglega 10-15 skref til hennar ! Enn vantar upp á jafnvægið en þetta er allt að koma!!
Tuesday, April 24, 2012
Tönn nr. 6 mætt á staðinn :)
Þá eru komnar 4 tennur í efri góm og tvær í neðri. Framtennurnar tvær og næstu tennur þar við eru komnar uppi, fremstu tvær í neðri góm. Þetta útskýrir mikla nagþörf litla karls rétt áður en tönnin braust út :)
Saturday, April 21, 2012
Smá ferð á suðurland
Við Stefán fórum í aðra ævintýraferð með Steinku systur í dag. Að þessu sinni var ferðinni heitið austur fyrir fjall að skoða fugla. Stefán steinsofnaði á leiðinni og þegar við systur stoppuðum og fengum okkur kaffi á Eyrarbakka svaf hann sætt í bílnum á meðan. Hann vaknaði svo þegar við fórum af stað út úr bænum. Við stoppuðum stutt á Stokkseyri til að taka bensín og þar fékk Stefán smá vatn að drekka og kex :) Síðan keyrðum við til Hveragerðis þar sem við stoppuðum í gróðrastöð Ingibjargar og keyptum tómataplöntu. Stefáni fannst gaman að skoða blómin en var svekktur að fá ekki að snerta þau :) Loks fórum við að Þrastarlundi að leita að spennandi fuglum á Soginu. Heppnin var með okkur, við sáum flottar straumendur og nokkrar toppendur á sundi :) Stefáni fannst ekkert leiðinlegt að komast út, við gengum aðeins meðfram ánni og hann var hæstánægður. Fékk að snerta trén en það finnst honum mikið sport. Svo var keyrt heim á leið, Stefán kominn með meira í reynslubankann :)
Herrann fékk að prófa að sitja á bílþakinu, alls ekki leiðinlegt :) Góð byrjun á deginum
Með Steinku við Sogið
Benda saman á eitthvað
Það var gaman að hafa Freyju með sér aftur í
Herrann fékk að prófa að sitja á bílþakinu, alls ekki leiðinlegt :) Góð byrjun á deginum
Með Steinku við Sogið
Benda saman á eitthvað
Það var gaman að hafa Freyju með sér aftur í
Thursday, April 19, 2012
Vetrarblóm á sumardaginn fyrsta
Nú hefur Stefán Sölvi upplifað sumardaginn fyrsta í fyrsta sinn ( að sjálfsögðu :)) Við fórum með Steinku systur í bíltúr að Kleifarvatni að skoða vetrarblóm en það gerir hún á hverju ári í sumarbyrjun. Við skruppum fyrst út á Álftanes þar sem við Steinka skoðuðum fugla. Stefán sat í bílnum en skemmti sér vel þegar hurðin var opnuð og hann fékk að sjá út. Síðan brunuðum við að Kleifarvatni. Vetrarblómin voru færri en oft áður en engu að síður fundum við fallega blómstrandi brúska. Við keyrðum svo meðfram vatninu og stoppuðum m.a. við Stefánshöfða enda þurfti Stefán að láta mynda sig við skiltið :) Við viðruðum svo bæði hund og barn við vatnið og Stefáni fannst algert æði að koma út og fá að anda að sér frísku lofti. Það var líka svaka gaman að horfa á Freyju fá smá snakk að borða :) Skemmtileg ferð, vonandi getum við farið aftur með Steinku á næsta ári :)
Stuð í bílnum úti á Álftanesi
Vetrarblóm
Stefán og Steinka við Stefánshöfða
Snúllinn sest á skiltið
Bara gaman að vera á Stefánshöfða :)
Freyja kom til að fá snakk við ströndina
Hún var afar spennt fyrir gúmmelaðinu
Vetrarblóm
Stefán og Steinka við Stefánshöfða
Snúllinn sest á skiltið
Bara gaman að vera á Stefánshöfða :)
Freyja kom til að fá snakk við ströndina
Hún var afar spennt fyrir gúmmelaðinu
Stefáni fannst hún fekar fyndin
Subscribe to:
Posts (Atom)

