Lilypie Third Birthday tickers

Wednesday, December 21, 2011

Gaman í baði :)

Stefán Sölvi elskar að fara í bað :)  Eftir að hafa farið á 2 ungbarnasundsnámskeið er hann vanur vatninu og byrjar að sulla um leið og hann er kominn ofan í baðið :)  Hér er myndband af skvampa litla að njóta lífsins í baði :)

Alltaf nóg að gera

Við Stefán Sölvi erum alltaf jafn önnum kafin :)  Á laugardaginn fórum við í fertugsafmæli Gunnu vinkonu.  Þar fékk Stefán brauð í fyrsta sinn.  Ég týndi upp í hann bita af litlum brauðbollum sem Gunna hafði bakað og líkaði unga manninum það mjög vel :)  Hann naut þess eins og venjulega að fá fullt af athygli :)  Svo brunuðum við yfir í jólaboð hjá mömmu og þar voru fyrir tvö önnur kríli, þau Úlfhildur og Helgi Steinar.  Svo gaman að vera með þrjú svona lítil í fjölskyldunni á sama tima :)  Á sunnudaginn fórum við svo í jólaboð hjá Elísabetu og Frímanni, vinum mömmu.  Þar heilsaði Stefán upp á heimasætuna Maríönnu, sem er 11 mánaða og horfði öfundaraugum á hana þegar hún skreið af stað - áfram, ekki aftur á bak !  Á þriðjudagskvöldið var mamma svo með kaffiboð fyrir systur sinar og frænkur. Þá fékk unginn enn og aftur stöðuga athygli og svo fínan hest og dásamlega prjónaða peysu frá Kristjönu frænku.  Bara gaman :)  Því miður hafði mamma ekki vit á að vera með myndavélina með sér svo myndir vantar.  Lofa bót og betrun í þeim málum í framtíðinni !  Nú er bara að bíða spenntur eftir fyrstu jólum Stefáns Sölva :)

Thursday, December 15, 2011

Fyrsti flugmiðinn!

Eins og alltaf gerist eitthvað í fyrsta sinn hjá Stefáni.  Ég er búin að bóka ferð fyrir okkur til Kaupmannahafnar í apríl að heimsækja Hildi og Sören vini mína :)  Stefán fer því í sína fyrstu flugferð 10 mánaða, alveg eins og systir sín.  Hún flaug einmitt fyrst til Kaupmannahafnar, og fór svo reyndar yfir til Svíþjóðar.  Hér er mynd af hluta flugmiðans hans :D

Margt að gerast :)

Stefán Sölvi er nú búinn að jafna sig alveg eftir veikindin og er sprækur sem lækur.  Hann er alltaf að prófa nýjar matartegundir. Núna síðustu viku hefur hann prófa kjúkling, lifrarpylsu, blómkál og rófur.  Honum fannst rófurnar algert æði :)  Honum fannst blómkálið eintómt ekki eins spennandi en borðaði það með maukuðum kjúkling án nokkurra vandræða.  Hann er líka að verða duglegari að hreyfa sig, rúllar um öll gólf, bakkar og snýr sér.  Hann fer út um allt með þessum aðferðum en endar ansi oft undir borði :D Hann hefur tvisvar náð að setjast upp sjálfur frá því að liggja á maganum :)  Við lukum ungbarnasundnámskeiði nr. 2 síðasta laugardag og ætlum á það þriðja eftir jólin :)  Svo er unginn farinn að babla ennþá meira, farinn að gera tilraunir með röddina og í fyrradag sagði hann hátt og skýrt MAMMA!  Mömmuhjartað vill meina að hann hafi alveg vitað hvað hann væri að segja en efasemdafólk myndi væntanlega telja að þetta væri tilviljun ;)  Hér eru myndir af fegurðarprinsinum :)

 Steinka frænka og Úlfhildur barnabarnið hennar komu í heimsókn ásamt Freyju voffa
 Kominn í sjálfheldu undir borði
 Alvarlegur en afskaplega sætur :)
Gaman í leikhringnum :)

Sunday, December 11, 2011

Hrafndís Jóna í pössun :)

Hún Hrafndís Jóna var hér í pössun þann 3. desember.  Stefán var lasinn og ekki í eins góðu stuði og venjulega en fannst samt spennandi að fylgjast með henni.  Hún var svo góð þessi elska, lék sér eins og dúkka og þurfti ekkert að hafa fyrir henni :)  Hún var dugleg að reyna að leika við Stefán, sat hjá honum og rétti honum dót en var stundum aðeins of áköf, hann mótmælti þegar dótið var sett beint í andlitið á honum :)  Hún var líka svo góð að faðma hann nokkrum sinnum, stundum svo innilega að hann fór að kvarta :)  Það var sönn ánægja að passa þessa sætu dömu.  Hér eru myndir af þeim krílunum saman:
 Lítil dama að leika við litla prinsinn
 Hér er verið að faðma litla barnið :)
 Rétt eftir myndatökuna mótmælti Stefán þessu innilega faðmlagi :)
Hér eru þau að spjalla saman :)

Monday, December 5, 2011

Fyrstu veikindin :(

Þar kom að því.  Ef frá er talin hiti í kjölfar þriggja mánaða sprautunnar hefur Stefán Sölvi verið stálhraustur.  Það breyttist allt á föstudagseftirmiðdaginn.  Ég tók eftir því að litli kúturinn var einstaklega pirraður.  Þegar farið var að þreifa á honum kom í ljós að hann var orðinn heitur.  Ég mældi kútinn og þá var hann með 38.7 stiga hita.  Ekki skrítið þó karlgreyið væri slappur!  Hann var afar lítill í sér eftir því sem leið á kvöldið og að lokum gaf ég honum stíl.  Við það hresstist hann heilmikið og hló glaðlega þar til hann sofnaði.  Hann svaf órólega um nóttina og á laugardagsmorguninn var hann kominn með 39,8 stiga hita :(  Hann var afar slappur allan laugardaginn, hann fékk stíla reglulega en leið greinilega ekki vel þrátt fyrir þá.  Mér tókst þó að fá hann til að borða þrisvar sinnum en hann fékkst ekki til að taka brjóstið allan daginn.  Það eitt sýndi nú að ástandið var óvenjulegt !  Aðfaranótt sunnudagsins var hann sjóðandi heitur og leið afar illa.  Um morguninn þegar hann vaknaði var hann með 39,6 stiga hita.  Ég reyndi að hringja á barnalæknavaktina og læknavaktina, allt upppantað hjá barnalæknunum og stöðug bið í símann hjá læknavaktinni.  Ég gafst því upp og fór með hann á bráðavakt barna.  Þar var mældur hiti, súrefnismettun og hjartsláttur.  Hann var þá kominn niður í 38,5 með hjálp stíls.  Svo var límdur á hann poki til að taka þvagprufu og tekin blóðprufa úr tánni. Stefáni fannst þetta ekkert skemmtilegt og skældi af og til meðan hjúkkan var að bisa við þetta.  Svo kom læknir og hlustaði hann og skoðaði í eyrun.  Allt leit vel út fyrir utan smá vökva í eyra, blóðprufan reyndist í fínu lagi líka.  Við biðum svo eftir að fá þvagprufuna til að fá lokaniðurstöðu.  En herrann var ekkert að pissa :)  Við fengum lánaðan lítinn bíl og fórum í göngutúr um gangana.  Stefán sat eins og herramaður í bílnum og virtist skemmta sér þó lítið væri um bros.  Honum þótti líka gaman að stóra fiskabúrinu í andyrinu.  Loks kom piss í pokann og hjúkkan kom fljótt til baka með niðurstöður: hreint og fínt prinsapiss :):)  Læknirinn kvaddi okkur með því að þetta væri sennilega vírus sem hann losnaði við fljótlega.  Við fórum með það heim og sváfum svo í næstum fjóra tíma.  Hann svaf meira og minna það sem eftir var dagsins og var bara nokkuð hress um kvöldið, vaknaði aðfaranótt mánudagsins og tók smá aríu þegar hann átti að sofna aftur.  Í dag mánudag var hann bara nokkuð sprækur, hitalaus um morguninn en því miður með 38,5 um kvöldið.  Vonandi fer þessum veikindum að ljúka !  Hér eru myndir af kútnum í bílnum uppi á spítala :)
 Á keyrslu með Hildu systur
 Kíkir á mömmu
 Æ það sést hvað maður er slappur og lítill á þessari mynd !
Alvarlegi ökumaðurinn !

Thursday, December 1, 2011

Fyrsta sinn á Holtið :)

Stefán Sölvi er svo fínn maður að hann fór og borðaði jólahádegisverð á Hótel Holt með mér og vinnufélögum mínum hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur :)  Stefán fékk góða þjónustu, þjónarnir maukuðu fyrir hann epli og báru fram í flottri skál með gullmynstri :)  Fyrst fékk hann græn epli og úff hvað minn maður gretti sig mikið !  Hafði aldrei smakkað neitt svona súrt á ævi sinni :)  Hann borðaði samt nokkrar skeiðar af þessu en svo báðum við þjóninn um rauð epli og það mauk rann ljúflega niður :)  Ég var að borða í fyrsta skipti á Hótel Holt - Stefán snaraði þessu af sex mánaða :)