Lilypie Third Birthday tickers

Saturday, February 12, 2011

Thursday, February 10, 2011

Mæðraskoðun 3, 25 vikur og 1 dagur

Ég mætti hress og kát í morgun í mæðraskoðun. Komst að því að ég hafði þyngst um 6 kg frá síðustu skoðun! En það er reyndar bara 1 kg yfir ráðlagðri þyngdaraukningu, svo verra gæti það verið. Annars leit allt vel út, skólabókarblóðþrýstingur og fín í blóði. Ása ljósmóðir mældi svo stærð legsins, það reyndist vera 29 cm sem er reyndar 2 staðalfrávikum yfir meðaltali. Ása sagði að það væri meira að marka næstu mælingu. Rúsínan í pylsuendanum var samt þegar Andri systursonur minn og Gunnur konan hans kíktu í gættina með Úlfhildi dóttur sína. Hún var þarna í 2 mánaða skoðun og ég fékk að taka hana og knúsa, án þess að þurfa að slást við æstar eldri systur mínar :) Bara gaman! Næst á dagskrá er svo sykurþolspróf 2. mars og mæðraskoðun 3. mars.

Tuesday, February 8, 2011

Bumbumyndataka a la Kristín og Svava

Við vinkonurnar þurftum endilega að stilla okkur upp fyrir okkar útgáfu af huggulegri bumbumynd :) Þarna er ég komin 23 vikur :)

Thursday, January 20, 2011

Krílríkur sparkar í Hildu :)

Loksins kom að því :) Í kvöld fann Hilda Margrét bróður sinn sparka í fyrsta sinn :) Hún var oft búin að reyna að finn spörk en án árangurs. Í þetta skipti ýtti hún hendinni fast niður á magann og Krílríkur sparkaði kröftuglega á móti :)

Sunday, January 16, 2011

Bumbuhittingur :)
















Í gær hittumst við æskuvinkonurnar Þeba, Sif og ég heima hjá Þebu í Mosó. Svo skemmtilega vill til að við erum allar bumbulínur um þessar mundir ! Sif á að eiga 23. janúar og Þeba 21. febrúar svo þær áttu vinninginn í bumbustærð :) Hér er mynd af þessum glæsilegu bumbum :D


Monday, January 10, 2011

Tvær góðar bumbur saman :)


Hér er mynd af okkur bumbulínunum Sif og Svövu heima hjá Ágústu vinkonu á sunnudaginn :)
Sif á að eiga 23. janúar og er líka með strák í bumbunni :)

Friday, January 7, 2011